Segir hver?

Í hádeginu var flutt frétt í ríkisútvarpinu, kennd Kára Gylfasyni: 

virðast fela í sér

Áhöld eru hins vegar um hvort nýju lögin standist stjórnarskrá.

Þetta sé reyndar viðurkennt afdráttarlaust í frumvarpi um nýja stjórnarskrá.

Nefndarmenn í umhverfis- og samgöngunefnd telja sumir

Þá telur minnihluti umhverfis- og samgöngunefndar

Þá er það mat minnihlutans að málið verði ekki afgreitt

Mat áheyranda, og nú lesanda, sem hefur enga afdráttarlausa skoðun á loftslagslögum eða ESB er að þessi frétt hafi verið kranafrétt. Nefndarmenn, minni hluti eða meiri hluti, eru ekki nefndir með nöfnum. Það er vísað í nýju og gömlu stjórnarskrána. Er ákvæði um framsal og losunarheimild eins í báðum gerðum?

Sendi einn maður frá sér fréttatilkynningu eða skrifaði hann bara á Facebook-síðuna sína? Er einhver fótur fyrir þessari „frétt“?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Eins og þú hefur séð í kvöldfréttrum þá er þetta minnihlutaálit með frumvarpinu. Þ.e. að framselja vald eins og t.d. að skriffa undir alþjóðasáttmála t.d. um magn losunarheimilda er í raun ekki heimilt skv. stjórnarskrá. Þetta vita allir þingmenn. Sem og að margar tilskipanir ESB sem við tökum upp skv. EES samning eru í raun á gráu svæði eða algjörleg gegn ákvæðum í Stjórnarskrá. Hún leyfir í raun ekki óbreytt að við göngumst undir alþjóðlega sáttmála og samninga sem kveða á um stofnanir úti í heimi setji okkur reglur sem við verðum að fara eftir.  Þessu er breytt í drögum að stjónrarskrá. En neikvæðu öflin í þjóðfélaginu gegn þeim breytingum hafa tengt það við ESB umsókn sem það er alls ekki. Því í raun getum við ekki verið í EES með óbreyttri stjórnarskrá.

Magnús Helgi Björgvinsson, 25.12.2012 kl. 20:30

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Ég missti reyndar af kvöldfréttum en skil þig svo að við brjótum reglulega gegn stjórnarskrá. Það leiðir svo hugann að íslenskri bankastarfsemi í öðrum löndum og tryggingu á bankainnstæðum umfram lágmarkið.

Berglind Steinsdóttir, 25.12.2012 kl. 21:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband