Mánudagur, 20. maí 2013
,,Ómetanleg landkynning"
Nú heyrist að Simpson ætli að tala íslensku eða um Ísland, nema hvort tveggja sé, í þætti kvöldsins á Stöð 2. Í fréttayfirliti heyrði ég rétt í þessu Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóra Íslandsstofu, segja að þetta væri ómetanleg landkynning. Ég vildi að ég hefði rangt fyrir mér en ég held að áherslan í ferðaþjónustunni sé mikið til sú að fá fleiri ferðamenn til landsins.
Ég er ekki búin að fara neitt með ferðamenn á árinu en ég heyri hjá þeim sem eru til dæmis búnir að fara hringinn með túrista að víða sé enn lokað og það er ekki endilega vegna tíðarfarsins, okkar kalda vors. Ferðaþjónustan er ekki orðin að heilsársatvinnugrein nema í örlitlum mæli þannig að það þýðir ekki að hjakka í því að fá fleiri gesti hingað, það verður þá að vera hægt að bjóða þeim boðlega þjónustu um allt land á öllum árstímum.
Athugasemdir
Síðasta ferðin mín í fyrra var 11.-12. sept. í fyrra: frá Egilsstöðum til Mývatns og til baka daginn eftir. Rútan var auðvitað á sumardekkjum, farþegar á götuskóm, sumir íþróttaskóm í 2ja daga Íslandsferð enda hiti vel yfir +25 í Þýskalandi við brottför.Skafrenningur og hálka á Möðrudalsöræfum, mikil ófærð í Mývatnssveit og allt rafmagnslaust á Skútustöðum þar sem var grillað og etinn kvöldverður við kertaljós.
Við Dimmuborgir var erfitt að snúa rútunni við, látið var nægja að horfa frá veitingahúsinu yfir Borgirnar, allt á kafi í snjó. Um 10 þúsund fjár saknað. Ófært var að Dettifossi og komið til baka á réttum tíma til Egilsstaða. Þetta var sannkölluð ævintýraferð sem gleymist sjálfsagt sumum seint.
Guðjón Sigþór Jensson, 21.5.2013 kl. 17:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.