Gáta

Og lausnina er ekki að finna fyrir neðan mitti voru skilaboð frá sendanda:

Konurnar eiga sér hús
grátt og loðið sem mús.
Enginn kemst þar inn
nema eineygði biskupinn.
 
Fylgja honum riddarar tveir.
blindir eru báðir þeir.
Þeir leiða hann út og inn

eineygða herrann sinn.

Ég er alveg liðónýt í svona orðaleikjum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hér þorir einginn að skrifa svarið, ert þú Berglind búin að finna svarið?

Sigfús Sigurþórsson., 14.3.2007 kl. 09:07

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Nei, en það eru upp getgátur um saumaskap.

Berglind Steinsdóttir, 14.3.2007 kl. 11:32

3 identicon

Ráðning: Nálarpúði, nál og  fingurnir sem halda um nálina.

Ásgerður klára!! (IP-tala skráð) 14.3.2007 kl. 12:04

4 identicon

Svarið var algjörlega við nefið á mér.

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 14.3.2007 kl. 12:08

5 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Já en, já en, já en, geta ekki karlar líka átt nál og tvinna og annað sem við á að éta ...? Þetta er allsherjardiss gagnvart jafnrétti.

Berglind Steinsdóttir, 14.3.2007 kl. 12:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband