Laugardagur, 24. mars 2007
Fasteignamarkaðurinn gerir það ekki endasleppt
Úr því að mbl.is gerir mér þetta enn einu sinni ætla ég að láta vaða. Er þetta frétt? Þetta er upptalning sem sáralítið er lagt út af. Ég er mikill áhugamaður um fasteignamarkaðinn, reyndar vildi ég helst geta haft áhrif á hann því að ég trúi því að íbúðir séu almennt, yfirleitt og allajafna verðlagðar of hátt þessi misserin.
Ég man þegar ég keypti 54 fm íbúð árið 1992 á 3,9 milljónir. Hún var til sölu um daginn á 14,2. Það var búið að dubba hana upp, mikil ósköp, en hún var klárlega of hátt verðlögð og hreyfðist ekki og seldist ekki og var um kyrrt á söluskrá vikum og mánuðum saman. Ég veit ekki hver afdrif hennar urðu á endanum.
Ég er bjargföst í þeirri skoðun minni að fasteignasalar, og trúlega líka starfsmenn greiningardeilda bankanna, beri mikla ábyrgð á hækkuðu verðlagi. Fasteignasalar bera fyrir sig að verðtilboð sé móðgandi lágt ef væntanlegir kaupendur vilja bjóða það sem þeim finnst eðlilegt. Svo er kannski seljandinn samt hæstánægður þegar til á að taka. Verðmætamatið er bara búið að brenglast svo mikið með þessari hröðu hækkun undanfarinn áratug.
Viss hækkun var orðin tímabær, en hún varð of mikil og of hratt. Háu lánin eru bullandi sek í þessu og svo skiptir líka máli að nokkrir auðkýfingar láta sér í léttu rúmi liggja hvort þeir borga 20 eða 200 milljónir fyrir eignina. Þegar einhverjir gera rosalega góða sölu vilja hinir í götunni líka komast á jötuna og þannig hefur orðið nokkur sefjun.
Getur einhver hrakið þetta með rökum?
Ég er til í að borga 200 þús. á fermetrann fyrir réttu íbúðina. Það er samt þreföldun frá því að ég seldi litlu íbúðina mína 1997. Mín þarf að vera rétt staðsett, með suðvestursvölum og stórri stofu. Mér er sama um sérinngang og bílskúr.
Hún verður kannski á endanum í öðru landi.
185 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Portúgal?
ingvi (IP-tala skráð) 24.3.2007 kl. 19:26
Rignir nokkurn tímann í Portúgal? Þá er það nefnilega góð hugmynd.
Berglind Steinsdóttir, 25.3.2007 kl. 19:35
Ég hef velt því lengi fyrir mér hversu lengi þetta ástand varir, bæði þetta háa verð og samt þessi gríðalega sala á fasteignum. Fyrir 3 áum síðan spáði ég því að þetta yrði hrunið eftir eitt ár, en svo er alsekki. Þú Berglind ert til í að borga 20 milljónir fyrir 100 fm íbúð, og nú spyr ég fávís maður, ekki síst á þessu sviði, telur þú það vera raunhæft verð? Ég get alveg sagt þér hvað ég held eða finnst að sé "rétt" verð, það er í mesta lagið 180.000 á fermetir miðað við "réttu" íbúðina, en eins og sagði hef ég ekki nægilegt vit á þessu og ætti ekki að vera að fjasa hér í Athugasemd hjá þér, langar bara að vita hvað fólki/þér finnst um hvað "rétta" verðið sé. Það er kostur að við fáum að njóta bloggsins hjá þér þótt þú flytjir til Portúgals.
Sigfús Sigurþórsson., 26.3.2007 kl. 00:48
Ég er svo innilega sammála þér Berglind. Mér þykir verðmætamat vera orðið ansi brenglað í dag og ég skil ekki að fók skuli endalaust geta bætt á sig lánum og aukinni greiðslubyrði.
Það virtist sem fasteignaverð ætlaði að lækka um tíma en svei mér þá ef það er ekki enn að stíga. (A.m.k. þær eignir sem ég læt mig dreyma um :-( )
Getur þetta gengið svona mikið lengur?
Ísdrottningin, 26.3.2007 kl. 01:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.