Kvöl og pína

Stundum verður maður að þjást tilhlýðilega. Það er ágætlega við hæfi skömmu eftir páska. Ég fór í fermingu í dag.

Þetta er greinilega vinsæll dagur því að það voru um 30 krakkar sem sögðu já við prestinn sem byrjaði á því að biðja fólk um að taka ekki myndir uppi á sviði (eða sagði hún það ekki, sviði?). Svo sagði hún að eftir athöfnina mætti skjóta eins og menn vildu!

Þetta er orðið helmingi meira sjónarspil en var þegar ég var fermd. Meint trú er a.m.k. lítt sýnileg. Ég verð þó að segja Svavs bróðurdóttur minni sem fermdist fyrir fjórum árum það til hróss að hún hugsaði vandlega um það hvort hún ætti að fermast, fermdist svo ári síðar en jafnaldrarnir - og sér reyndar eftir því. Ég tek kannski hrósið til baka, hehe. Systir hennar á að fermast á næsta ári og hugsar nú stíft sinn gang.

Hvernig á maður að geta virt kirkjuna og þjóna hennar þegar þeir rífast hátt og í hljóði, bera hver aðra sökum og ganga ekki á undan með góðu fordæmi og frið að leiðarljósi? Fríkirkjan er í mínum augum ekkert öðruvísi en þjóðkirkjan og Hjörtur Magni prestur eins og Dalla eða Flóki eða Bjarni eða Jóna Hrönn. Svo er hann kærður fyrir að hafa skoðanir á trúsystkinum sínum og stofnuninni sem þau starfa fyrir.

Ég nenni ekki að rifja upp öll þau skipti sem þjónar kirkjunnar hafa komist í fjölmiðla vegna óeiningar. Ég ætla heldur ekki að rifja upp spillta presta bókmenntanna eða blóði drifna slóð trúarinnar. Ég ætla heldur ekki að telja allar milljónirnar sem fara í þetta allt af skattfé. Þetta er gömul saga og sígild, því miður. Sjónarspilið er hins vegar að aukast, myndavélar ráða ferðinni og þessi þarna Jesús víkur æ lengra til hliðar. Hógværð er náttúrlega kostur ...

En hvað er ég að þenja mig? Ég gekk í Ásatrúarfélagið fyrir tveimur árum eftir að hafa verið utan trúfélaga í nokkur ár og þar sitja náttúrlega heldur ekki allir á sátts höfði.

Es. Fyrirgefðu, Addý frænka mín, að ég skuli nota fermingardaginn þinn til að úttala mig. Til hamingju með daginn, hmm.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Sæl Berglind. Mér finnst það miður hvað prestar eru orðnir pólitískir, þeir eru kannski ekkert pólitískari en áður, en allavega er hún meyra áberandi og blandast meyra inn í kirkjustarfið en áður, vegna þessa tel ég einmitt að mikið af þessum þrætum sem upp hafa komið, allavega meyrir harka en ella.

Sigfús Sigurþórsson., 16.4.2007 kl. 19:43

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Ég lenti á spjalli við prestsfrú í dag sem var gjörsamlega ósammála mér um kröfur til presta. Reyndar væri hún ekki í þjóðkirkjunni nema af tryggð við manninn sinn þannig að ég botna ekkert í henni. Ég stend mig að því að ætlast til að prestar sýni betra fordæmi en aðrir þótt fólk eigi auðvitað að vera siðlegt (eða svona ...).

En mér sýnist ég vera ósammála þér, Sigfús. Úr því að við sitjum uppi með þessa presta vil ég að þeir taki þátt í samfélagsumræðunni. En ég er svo sem ekki hrifin af stéttinni þannig að ég er varla gjaldgeng í umræðunni.

Berglind Steinsdóttir, 16.4.2007 kl. 19:56

3 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Fermingin er ritúall sem er úreltur vegna þess að hann gengur út á að ferma fólk yfir á fullorðinsárin. Í gamla daga var fólk orðið fullorðið á þessum aldri, varð að fara að vinna fyrir sér til að drepast ekki úr hungri. Allir sjá að meiningin er horfin út í veður og vind í dag, en enginn þorir að gera neitt í því.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 16.4.2007 kl. 23:40

4 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Já, það yrði strax skárra ef fermingaraldurinn yrði hækkaður í 18 ár. Ég held samt að vandinn sé ekki fólginn í því að enginn þori, ég held að „allir “séu bara sinnulausir.

Berglind Steinsdóttir, 17.4.2007 kl. 20:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband