Áhætta spáhætta

Ég trúi því staðfastlega að kjósendur kjósi fyrst og fremst eftir málefnum, stefnuskrám og svo afrekum fortíðar. Engu að síður skipta frambjóðendur líka marga máli. Sjálf vildi ég eiga 10 atkvæði til skiptanna á kjördag og ég veit ekki betur en að í Þýskalandi séu þau á einhvern hátt tvö. Maður hefur óhjákvæmilega skoðun á fólki líka, dugnaði og eftirfylgni, ekki bara loforðum og skrúðmælgi.

Ég hef aldrei kosið í prófkjöri og þannig hef ég engin áhrif á uppröðun á lista.

Mér finnst óþolandi að Reykjavík skuli skipt í tvö kjördæmi og eiginlega finnst mér þénugast að hugsa mér landið allt eitt kjördæmi. Væru þá ekki 126 í framboði hjá öllum listum, bara í stafrófsröð? Eða færri, og maður fengi að velja einn lista og raða frambjóðendum þess lista í sæti? Ég hef ekki séð neinn útfæra þessa hugmynd (kannski hef ég ekki lesið réttu gögnin) en yrði það kannski eins og allsherjarprófkjör?

Mér heyrast menn vera sammála um að þeir fái ekki alltaf upp úr kössunum það sem þeir kjósa - væri eitt kjördæmi ekki bara risastór áskorun til allra í framboði?

D'Hondt hvað?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Ég er að mestu sammála þér. Er samt pínulítið hrædd um að ef kjósendur raða á lista þá myndu Reykjvíkingarnir raðast efst og komast inn. Og mér sýnist almennt þeim vera skítsama um hvað gerist úti á landi. Ef hægt er að tryggja rödd þingmanna frá öllum landshlutum þá væri eitt stórt kjördæmi gott kerfi.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 14.5.2007 kl. 22:21

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

 

Ég gáði áðan að gamni mínu að prestssyninum sem Sigmundur Ernir talaði svo mikið um í kosningasjónvarpinu, Höskuldi Þór Þórhallssyni, sem kom inn sem þriðji maður Framsóknar í Norðausturkjördæmi. Hann býr á Langholtsveginum, 104 Reykjavík. Tilfinning mín hnígur líka svolítið í þá átt, að blessaðir þingmennirnir séu ekki upp til hópa í kjördæmunum sínum.

En kannski mætti kvótabinda landshlutana eitthvað - eins og kynin, hmmm? Ég er svo sem ekki (alveg) að grínast - og svo verð ég að benda ykkur á snilldarbloggara sem ég þekki ekki neitt, hana Elísabetu sem skrifar óborganlega fyndna klausu um þennan eina sem skilur kosningafyrirkomulagið.

Berglind Steinsdóttir, 14.5.2007 kl. 23:40

3 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Já, þetta líst mér vel á. Á mínu heimili hafa menn einmitt velt vöngum yfir ríkjandi kerfi síðan á kosningnótt. Það er ansi hart ef slíkar reikningskúnstir þarf til að reikna menn inn á þing að almenningur í landinu geti ómögulega skilið hvernig farið er að þessu. Mér finnst eitthvað ólýðræðislegt við það.

Steingerður Steinarsdóttir, 15.5.2007 kl. 09:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband