Yfirvofandi samkomubann

Ég er í þeim hópi sem þarf ekki að kvarta þótt tímabundið samkomubann verði tekið upp aftur. Síðasta samkomubann fór vel með mig, ég mætti alla daga í vinnuna, var yfirleitt ein þar og kom miklu í verk. Ég fór snemma að sofa og var rokin upp kl. 6 á morgnana og henti mér á jógadýnuna, fór svo að hlaupa í örsmáum hópum og leið býsna vel, borðaði hollari mat og var í góðu standi.

Nú er ég heima að skrifa ritgerð sem á að vera tilbúin í lok ágúst. Auðvitað stend ég upp frá tölvunni, geri ýmislegt og umgengst ýmsa, en samkomubannið mun aga mig betur. Já, ég veit að ég er heppin, sumir þurfa að hafa ofan af fyrir börnunum sínum og sinna alls kyns búverkum. En ég veit af því og þakka oft fyrir það. Ég er lukkunnar pamfíll.

Minn aðalvandi núna er að á morgnana finnst mér ég eiga svo mikið eftir ógert en á kvöldin finnst mér ég hins vegar alltaf hafa gert svo góða hluti yfir daginn. Ég held að ritgerðin verði tímamóta ... þótt kominn sé morgun ... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband