Miðvikudagur, 6. janúar 2021
Nýir siðir
Munið þið hrákadallana? Nei, auðvitað ekki, ekki frekar en ég. En hrákadallar voru mikið til siðs svo menn hræktu síður á gólfið sem áður hafði verið til siðs. Ég tengi hráka og hrækingar við sóðaskap en ástæðan fyrir því að mönnum var uppálagt að hætta hrækingum í tíma og ótíma var sýkingarhætta.
Eftir einhver ár eða áratugi verður kannski litið á handabönd eins og ég lít á hrækingar núna. Sem sóðaskap.
Merkilegir tíma sem við lifum.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.