Sunnudagur, 17. janúar 2021
Matarsóun og gámar fyrir utan verslanir
Ég er í blaðamennskunámi í HÍ og okkur var bent á þætti sem nemendur fyrri ára hafa gert undir lok skólaársins. Fyrir tveimur árum fjallaði hópurinn um loftslagsmál í víðu samhengi, mest samt um matar- og fatasóun. Þátturinn er gerður undir styrkri stjórn kennara og ég hefði sjálf verið mikið til í þetta efni. Í þættinum er m.a. talað við mann sem tekur úr gámum fyrir utan verslanir algjörlega óskemmdan mat sem verslanirnar hafa HENT, fólk sem hefur starfa af því að stýra okkur í betri neyslu og háskólanemendur um viðhorf þeirra til nýtingar. Ég er alveg hugfangin af því hvernig til tókst.
Þátturinn er tæpur klukkutími og hann hefði átt að fá meiri útbreiðslu - en það er ekki of seint!
Um hvað ætti minn hópur að fjalla? Hvað gerðist 1921 sem ætti þá 100 ára afmæli á þessu ári?
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.