Þriðjudagur, 5. júní 2007
Inga gengur í háheilagt hjónaband á laugardaginn - fyrst þetta:
Það gekk svo vel og var svo gaman að gæsa Ingu á fimmtudaginn og við vonum núna að fleiri brúðkaupa sé að vænta í vinahópnum. Annars er svo sem alltaf hægt að finna sér eitthvað til ...
Vel að merkja, það sést bara í bakhlið hinnar útvöldu á þessari mynd.
Athugasemdir
Gleymdist nokkuð að setja vatn í pottinn ?
Hrafnhildur (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 12:48
Þið eruð ógeðslega flottar.
Steingerður Steinarsdóttir, 5.6.2007 kl. 22:26
Ef að svona lagað hebbði nú tíðkast í mínu ungdæmi Haldið áfram að skemmta ykkur vel!
Vilborg Valgarðsdóttir, 5.6.2007 kl. 22:35
Téhé - og tvær áttu eftir að fara ofan í. Og það fyndnasta var að við höfðum parental guiding - pabbi einnar á pottinn og hann kom af og til og bauðst til að velgja okkur undir uggum!
Berglind Steinsdóttir, 5.6.2007 kl. 22:52
Mér finnst nú ekki fallegt af ykkur að teygja myndina á langveginn til að þið virkið grennri. Maður sér það á bjórdósinni, hún virkar eins og 50 sm löng!
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 6.6.2007 kl. 21:12
Hva, þær eru svona sætar og slank (ég tók myndina) - og bjórdósin er innflutt steradós, einmitt hálfur metri, múhhhaha.
Berglind Steinsdóttir, 6.6.2007 kl. 21:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.