Sunnudagur, 15. júní 2025
Þingfundur á sunnudegi
Ég fylgist auðvitað með fundarstjórnarumræðum á Alþingisrásinni. Á sunnudegi. Ég ætti að poppa en ég tími ekki að missa af neinu.
Ég er á móti þingfundum á sunnudögum og líka á laugardagskvöldum og reyndar held ég að allir þingmenn gætu stytt mál sitt til muna alla daga. En það sem hlýtur að verða fréttapunktur í fjölmiðlum er athyglin sem öll önnur helgarstörf fá, þar sem fólk hefur ekki val um að vinna ekki á sunnudögum. Við getum talað um verslanir, þ.m.t. bakarí sem opna dyr sínar fyrir allar aldir og hafa þá þegar framleitt ógrynni af nýmeti, sjúkrahús, öldrunarheimili, ferðaþjónustu og ylströndina.
Ég veit alveg að þingmenn vinna um helgar, semja frumvörp og nefndarálit, lesa skýrslur, hitta kjósendur og ganga um Þingvöll. Ég veit líka að þingmenn hafa mikið frítt spil og ráða vinnutíma sínum þegar fundartíma sleppir, bæði á þingfundum og nefndarfundum.
Ég gæti rantað lengi um umræðuna sem nú hefur staðið yfir í tæp þrjú korter, en ég tek undir með Bryndísi Haralds sem sagði áðan að málið um bókun 35 leysist ekki í þingsalnum. Ég held að þessi þingfundur sé fyrst og fremst til að skemmta okkur skrattanum vegna þess að ég hef stundum gaman af rugli og þótt ég nái ekki að poppa sit ég hér við minn indæla suðurglugga og klóra ketti á enninu meðan ég fylgist með fundinum.
Athugasemdir
Því miður misstir þú af efnislegri umræðu um málið því hún komst ekki að fyrir langdregnum og endurteknum ræðum um fundarstjórn.
P.S. Þingmenn semja sjaldan sjálfir frumvörp og nefndarálit. Slík skjöl eru oftast skrifuð af starfsfólki ráðuneyta, þingflokka eða Alþingis. Að sjálfsögðu á grundvelli fyrirmæla eða afstöðu þingmanna sem lesa svo yfir afurðirnar áður en þeir samþykkja þær. Stundum eru líka þingmál samin úti í bæ af einhverjum sem hafa hagsmuni eða áhuga á tilteknum málefnum og er svo komið á framfæri við hliðholla þingmenn eða flokka til framlagningar á Alþingi. Stundum er gagnrýnt að þingflokkar og ráðherrar megi ráða sér aðstoðarfólk en staðreyndin er sú að án þess gætu þeir ekki komið nærri því eins miklu í verk.
Guðmundur Ásgeirsson, 15.6.2025 kl. 20:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning