Laugardagur, 21. júní 2025
Lengsta þingræðan: Jóhanna Sigurðardóttir 1998
Ég var að hlusta á Vikulokin. Þar töluðu saman Diljá Mist Einarsdóttir, Pawel Bartoszek og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Þátturinn var óvenjulega hressilegur og gestir skorinorðir. Meðal annars lýsti Ingibjörg Sólrún eiginlega yfir stuðningi við mótmæli á Austurvelli 17. júní. En það sem ég staldraði við var þegar Diljá talaði um lengstu þingræðuna, þá sem Jóhanna Sigurðardóttir flutti 14. maí 1998 um húsnæðismál. Jóhanna hafði áhyggjur af að verið væri að
slá af, með litlum fyrirvara og litlum undirbúningi, félagslega húsnæðiskerfið.
Í byrjun ræðunnar kemur fram að hún fékk aukaborð undir gögnin sem hún ætlaði að leggja út af í ræðu sem hún var búin að ákveða að yrði löng. Ég hef ekki lesið hana í heild sinni en mér er sagt að Jóhanna sé með vel byggða ræðu, lausa við endurtekningar, og ég veit að eftir að ræðan hafði verið skrifuð upp las hún hana sjálf yfir og gerði lítils háttar athugasemdir á stöku stað. Útprentuð ræðan var einu sinni til sýnis á opnu húsi í Alþingishúsinu í heild sinni.
Það sem Diljá sagði áðan var að ræðan hefði hafist á hádegi 14. maí og staðið yfir til miðnættis daginn eftir. Ég skil Diljá þannig að hún haldi að ræðan hafi staðið yfir í um 36 klukkustundir. Hið rétta er að hún stóð 14. maí 1998
kl. 12:27-12:59
kl. 13:34-19:05
kl. 20:31-00:38
þar sem tvö matarhlé voru þegar á dagskrá þingsins. Samanlagður fjöldi mínútna var þá 32+331+247 mínútur, samtals 610 mínútur, þ.e. 10 klukkutímar og 10 mínútur.
Mönnum ofbauð einnig þegar Ögmundur flutti löngu hlélausu ræðuna sína um RÚV 4. apríl 2006 sem stóð frá kl. 23:10 til kl. 5:12 næsta morgun. Þess vegna var á endanum þingsköpunum breytt og tekið fyrir eins langar ræður og fólk gat flutt án þess að nærast eða fara á náðhúsið.
Ég skil vel að málþóf, það að þæfa málið, geti átt erindi en þegar fólk endurtekur sig í sífellu verður það leiðigjarnt. Og þegar þingmenn gjaldfella vinnuna sína með því að tala mjög mikið um að þingið þurfi að komast í sumarfrí sem standi þá frá miðjum júní til fyrsta þriðjudags í september geta þau sjálfum sér um kennt þegar allur almenningur hneykslast á lítilli skilvirkni þingsins og háum launum þingmanna.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning