Reykjavíkurbréfið um ferðaþjónustuna

Höfundi Reykjavíkurbréfsins í dag finnst ástæða til að gera ferðaþjónustunni hærra undir höfði, ekki síst með því að bæta samgöngur. Því miður hef ég ekki aðgang að Mogganum á netinu því að ég er ekki áskrifandi þannig að ég las hann á pappír.

Höfundurinn gerir m.a. Gjábakkaveg og veginn að Dettifossi að umtalsefni og svei mér ef þetta eru ekki aðalflöskuhálsarnir. Það er óttalega krúttlegt í nokkrar mínútur að hossast á þessum þvottabrettum en til lengri tíma er þetta einfaldlega fyrir neðan allar hellur. Af hverju er ekki búið að laga þessa vegi sem öllum hlýtur þó að bera saman um að ekki sé vanþörf á?

Komi Reykjavíkurbréfið fagnandi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Var að aka vegin að Dettifossi að austan verðu á 10 - 20 km/klst. - Mátti þakka fyrir að framrúðan hristist ekki ú rútunni, þvílík voru lætin!

Kjartan Pétur Sigurðsson, 9.7.2007 kl. 00:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband