Mánudagur, 20. ágúst 2007
Aumingja fasteignasalarnir
Það er ekki hægt annað en að vorkenna fasteignasölunum sem reyna hvað þeir geta að selja manni íbúðir þar sem fermetrinn er verðlagður á 350.000 krónur. Samúð mín er óskipt og þess vegna sýni ég því takmarkalausan skilning að þeir geti sjaldnast svarað spurningum mínum, eins og þeim hvernig parket sé á gólfunum, í hvaða átt svalirnar snúi, hver hússjóðurinn sé eða hvort íbúðinni fylgi geymsla. Huggun mín felst líka í því að svörin er yfirleitt að finna í gögnunum sem manni eru rétt - og útbúin af fasteignasölunum sem vita ekki svörin.
Ég er nefnilega að skoða um þessar mundir.
Athugasemdir
Var að upplifa sölu á fimmtíuogþremurfermetrum við Grettisgötu á fimmtánkommaþrjár. Allir aðstandendur íbúðarinnar eru sjokkeraðir á upphæðinni en það tók 4 daga að selja íbúðina.
Hrafnhildur (IP-tala skráð) 21.8.2007 kl. 09:52
Varkár vertu í viðskiptum við fasteignasala. Ekki versla við Valhöll til að mynda. Mín reynsla af þeim er ömurleg.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 22.8.2007 kl. 10:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.