Miðvikudagur, 29. ágúst 2007
Langtímastrætókort komið í hús
Ég er hamingjusamur háskólastúdent og hygg á mikla leiðangra í uppsveitir Reykjavíkursýslu í vetur, mun taka með mér þykka doðranta um þýðingar og lesa í gegnum skaflana í Grafarvogi og á Kjalarnesi.
Þökk sé grænu átaki Reykjavíkurborgar.
Athugasemdir
Hvaða leiðangrar verða svona þýðingarmiklir?
Smáinnlit/eftirlit 
Guðrún Þóra (IP-tala skráð) 29.8.2007 kl. 15:23
Hva, könnunarleiðangrar og solleiðis. Svo á ég bróður í Dalseli (sem sér mig ekki nógu oft). Þess utan er bara hollt fyrir ... leiðsögumenn að hafa spókað sig um allt.
Berglind Steinsdóttir, 29.8.2007 kl. 19:02
og svo gætirðu tekið þig til og boðið upp á leiðsögn á ákveðnum strætóleiðum einu sinni í viku eða svo... ;)
ellamaja (IP-tala skráð) 30.8.2007 kl. 08:50
Já, ég þarf líka endilega að gá hvort strætó keyrir ekki meðfram listaverkalínu í Grafarvoginum, mér finnst ég hafa heyrt það.
Berglind Steinsdóttir, 31.8.2007 kl. 19:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.