Miðvikudagur, 29. ágúst 2007
Þegar vits er þörf leitar maður það uppi
Ég á í ógurlegu lúxusvandamáli og leita víða ráða við því. Í dag varð fyrir valinu hópur valinkunnra leiðsögumanna á Geysi þar sem hvalborgarinn var kynntur enn frekar til sögunnar.
Hér eru Orfie hin flæmska sem mun giftast Þjóðverja og Ellamaja hin íslenska sem er gift til Kanada.
Og Magga sló til og fékk sér hvalborgarann sem hratt öllu af stað.
Mig langaði svolítið að smakka hvítlauksborgarann sem Rakel fékk sér en asnaðist til að fá mér lasagnað sem sést til hægri.
Hver biður um grænmetisrétt? Bryndís er svo sem öll í lýðheilsunni ...
Og svo er að sjá sem kertin hafi fengið óþarflega stórt hlutverk í Geysisleiknum þar sem þau skyggja á Röggu. Leifur hennar hefði viljað koma og smakka á hvalnum, það fylgir sögunni.
Og vandamálið leystist, allir eru sammála mér í því að fólk er svo ólíkt að maður getur ekki ætlað því sömu hlutina ...
Athugasemdir
Gjarnan hefði ég viljað vera með ykkur þarna í dag og fyrir forvitnissakir reynt hvalaborgarann.
kv.
Auður
Auður Herdís Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 29.8.2007 kl. 16:11
Já, ég vildi líka að þú hefðir verið með okkur. Geri ráð fyrir að fjarlægð í kílómetrum hafi verið nokkur farartálmi.
En hvað skyldi hafa haldið aftur af Ollu og Begga sem boðuðu komu sína, hmm?
Næsti leiðsögumannafundur árgangs 2002vor verður um helgi - en hvaða helgi? Bammbammbaramm ...
Berglind Steinsdóttir, 29.8.2007 kl. 19:12
það var mjög gaman að sjá ykkur allar sem mættuð og klárt mál að það er alltof langt síðan ég hef mætt á LSK 02-hitting því ég sá/þekkti ykkur ekki strax þegar ég skimaði yfir staðinn...
ellamaja (IP-tala skráð) 30.8.2007 kl. 08:52
hvaða lúxusvandamál var þetta annars?
ellamaja (IP-tala skráð) 30.8.2007 kl. 08:53
Ja, sko, lúxusvandamálið er leyndó um sinn.
Og já, það var ekki vanþörf á að hóa okkur saman. Og hver ætlar að hóa næst, téhé?
Berglind Steinsdóttir, 30.8.2007 kl. 12:32
Langaði svo að vera með en ennþá lengra fyrir mig að koma en Auði.
Æ hér er amerísk kisulóra að eltast við stafina á skjánum. ppppppppppppppppppppppppp, en 9999999999 og stígur á tölvuborðið. Jæja, en ég verð með næst, annars skal ég hundur heita. (ég á eftir að sjá eftir að segja þetta) Kemst örugglega ekki næst heldur eins og heppnin eltir mig alltaf eða hitt þó heldur.
Þórhildur (IP-tala skráð) 31.8.2007 kl. 02:28
Þórhildur mín, þú færð bara að velja daginn næst til að komast örugglega með. En hvar var Pétur?
Berglind Steinsdóttir, 31.8.2007 kl. 07:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.