Undirbúningur að veisluhöldum

Það verður garðveisla - og veðrið verður gott - annað kvöld. Helsta áhyggjuefni brúðgumans er að óvandaðir renni á hljóðið (það verður hljómsveit) og ætli að smygla sér í boðið. Ég hef boðist til að vera varðhundur, ganga um og spyrja: Hvort þeirra þekkirðu? ásamt því að segja í sífellu: Það er smáhalli í grasinu, passið ykkur á stögunum og kamarinn er þarna til suðausturs. Eftir veisluna verður moltutunnan sett yfir hauginn, hehe.

Í gær tók ég nokkrar myndir, var við heimildamyndagerð meðan aðrir lyftu tjöldum og mátuðu súlur.

Laufey og Oddur

Hér er tjaldhiminninn útbreiddur nokkuð.

Oddur og Snorri

Og hér lengra til vesturs.

Kamarflutningar

Marín, Snorri, Laufey og Þorgerður leggja gjörva hönd á plóg.

Frekari kamarflutningar ...

Ekkert lát á þessu

 

 

 

 

 

Marín á gægjum

Það þarf að styðja súlurnar, jájá.

Mynd að komast á tjaldið

Framhald á góðu

Tjaldið er 6*9 metrar

Og ég segi ekki hvaðan tjaldið kemur

Það er eins og mig minni að þetta hafi farið að gerast meðan ég var send í Melabúðina.

Litu kamrarnir nokkuð betur út en svona?

Ef einhverjum skyldi verða brátt í ... . Nei, djók, þá sendum við fólk í næstu hús. Svo er sjoppa við hliðina - til vesturs.

Þorgerður hamrar

Stögunum er komið fyrir alls staðar, líka þar sem það er ekki hægt.

Laufey runnaskreytir

Og við gætum þess að innan tjaldsins verði þessi fína runnaskreyting. En hljómsveitin ...?

Allir úr skónum

Allir inn að borða pulsur, úr skónum á meðan, nema hvað.

Tjaldveggir eins og hráviði

En upp fóru tjaldveggirnir þótt pulsugengið vildi helst ekki upp úr meltunni.

Að lokum byrjaði að rökkva

Og svona mun það líta út annað kvöld, dimmt og ókennilegt, múhhahaha.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æ hvað það er gott að eiga góða að, margar hendur vinna létt verk og svo framvegis.

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 31.8.2007 kl. 16:31

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Já, og til allrar hamingju var verkfræðiþekkingin leyst úr viðjum Snorra - því að enginn var landfræðingurinn!

Berglind Steinsdóttir, 31.8.2007 kl. 19:21

3 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

En hver er að fara að gifta sig?

Kristín M. Jóhannsdóttir, 1.9.2007 kl. 18:11

4 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Marín - en þau giftu sig reyndar 12. júlí, ákváðu bara að segja engum frá því þá af því að Marín þóttist ekki vilja láta gæsa sig. Eins og við hefðum einhvern tímann gert henni grikk ... Svo var partíið, ekki veislan skv. kortinu, í garðinum þeirra í gærkvöldi. Og máttur minn er svo mikill, hehe, að það stytti upp kl. 19 (enda trúarhiti minn óvenjulegur þegar kemur að álfum og ásum).

Berglind Steinsdóttir, 2.9.2007 kl. 12:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband