Er ég verri kúnni í bankanum af því að ég stend í skilum?!?

Nú ollu sparisjóðirnir mér vonbrigðum, tvisvar á einni viku. Á sunnudaginn heyrði til míns friðar að borga hótelreikning upp á tæpar 80.000 krónur og sveiflaði ég því e-kortinu (fyrrum) góða. Það fékk höfnun (ekki ég). Hótelstarfsmaðurinn hringdi og fékk heimild í gegnum síma og ég talaði við hr. e-kort á Íslandi sem bauðst til að hækka heimildina mína í 400.000.

Ég ætti auðvitað ekki að leggja á lesandann svona smánarlega lágar upphæðir en heimildin mín var upp á 300.000 og ég var hvergi nærri búin að nýta hana. Ekki einu sinni þegar fyrra tímabil var lagt við, það tímabil sem var búið en ekki gjaldfallið (en sparisjóðirnir leggja þetta saman sem hefur einu sinni áður komið sér illa í lok mánaðar). Merkilegur andskoti. Samtals var ég vissulega farin að nálgast 300.000 króna múrinn en ekki rjúfa hann.

Og hr. e-kort hækkaði heimildina í 400.000, bauðst til þess. Almennilegt af honum.

Svo var ég í búð áðan, keypti fyrir slatta og rétti fram kortið sem hefur líka dugað alla vikuna. En nei, það fékk höfnun. Við hringdum í Kreditkort hf. og var sagt að hringja í sparisjóðina (550-1200) af því að þar væri enn opið. Þar fengum við líka það svar að ekki væri hægt að gera neitt, ekki væri heimild til að hækka heimildina um það sem hr. e-kort hækkaði hana um um síðustu helgi! Nú var 400.000-kallinn þak (minnir mig).

Stúlkan í búðinni var algjör snillingur (ég er að meina það). Hún spurði pollróleg frk. sparisjóð hvort hún væri bara að svara í símann en ætti ekki að veita þjónustu. Þá fauk í frökenina.

Ég endaði með að borga með debetkortinu og kvaddi búðarstúlkuna með handabandi.

Og nú væri skemmtilegt að hugsa sér að vegna framboðs af vondri þjónustu og eftirspurnar eftir góðri þjónustu ætti ég að flytja viðskiptin. Ég er því miður bara ekki viss um að aðrir veiti betri þjónustu. Þó hef ég enn ekki verið tuktuð af Landsbankanum. Björgólfur Guðmundsson er viðkunnanlegur. En kannski vilja bankarnir frekar að maður skuldi og borgi of seint, lendi á FIT og haldi bönkunum uppi. Mig langar ekki til þess.

Þegar ég var komin heim með góssið fór ég beint út aftur og keypti HVÍTT HÖFUÐFAT sem mig bráðvantaði líka, ákvað að taka gleði mína á ný og byrja aftur að hlakka til morgundagsins.

Næsti kafli hefst síðan á mánudag þegar ég hringi í hr. yfirsparisjóð og reyni að veiða upp úr honum svör við þeirri spurningu hvers vegna ég fái ekki að nota úttektarheimildina sem hr. undirsparisjóður veitti mér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Hugsanlegt er að þú hafir tekið bensín og bensíndælan hafi tekið frá tugi þúsunda að þér forspurðri af heimildinni.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 1.9.2007 kl. 07:29

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Puhh, ertu að atast í mér, Orri? Ég er auðvitað búin að skoða heimabankann í þaula og þar eru bara færslur sem ég kannast við. Og herra yfirsparisjóður getur hlakkað til að heyra frá mér á mánudaginn (ég held að hann sjái bara ofsjónum yfir að borga mér 13% vexti á inneign mína og reyni þess vegna að hrekja mig í burtu).

Og svo allt annað, ég var að fletta í minningum mínum um Marín í gærkvöldi (ef maður skyldi taka til máls í brullaupinu) og í myndaalbúminu á ég þessa fínu mynd af þér. Þessa fínu mynd ...

Berglind Steinsdóttir, 1.9.2007 kl. 09:12

3 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Þetta er ljótt að heyra. Ég sem hélt að viðskiptavinir Sparisjóðsins væru ánægðustu viðskiptavinirnir.

Steingerður Steinarsdóttir, 1.9.2007 kl. 18:07

4 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Það gerist án gríns að bensínfélögin taki frá tugi þúsunda af heimildinni ef þú tekur bensín hjá þeim. Það kemur ekki fram á yfirlitinu, en gerir fólki erfitt fyrir við greiðslu á öðrum hlutum. Það var fjallað um þetta á Moggablogginu og svo í sjónvarpinu í kjölfarið.

En gaman, settu myndina á uglypeople.com

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 3.9.2007 kl. 09:46

5 identicon

Ég er líka viðskiptavinur Sparisjóðsins - og þetta kom líka fyrir mig um helgina. Þá var nú gott að eiga fleiri en eitt kort ...

Ásgerður (IP-tala skráð) 3.9.2007 kl. 10:36

6 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Það nýjasta er að ég hringdi í frú yfirþjónustufulltrúa sem tók mér fjarska vel og viðurkenndi mistök fyrirtækisins. Þótt ég hafi trúlega tapað um 1.000 krónum á því að ráða ekki hvernig viðskiptin færu fram hef ég ákveðið að láta kyrrt liggja ... hehe. Ég skoðaði líka vaxtatöflu Landsbankans í gær og komst að þeirri viðbúnu niðurstöðu að sparisjóðirnir bjóða þrátt fyrir allt svo miklu betur þegar maður er sparifjáreigandi (t.d. í stað þess að vera eigandi fasteignar) og kapítalistinn í mér segir einfaldlega: Sittu sem fastast. Þannig að, Steingerður, ég er aftur orðin að ánægðum viðskiptavini sparisjóðsins.

Ég hef algjörlega misst af umræðunni um þessar heimildir sem bensínfélögin taka af kaupendum bensíns. Úff, ég gæti alveg tekið eitt brjál ef um það væri beðið, hef hins vegar sloppið við slíkt hingað til. Og myndin, Orri minn, er bara sæt (og geymd í albúmi).

Hvaða hvaða, Ásgerður, þurftir þú einhvers staðar að versla um helgina?

Berglind Steinsdóttir, 3.9.2007 kl. 11:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband