Af hverju lækkar matvælaverðið hjá okkur við að ganga í Evrópusambandið?

Kemst þá á eitthvert evrópskt jafnaðarverð? Getur Ísland sótt um styrki? Lækkar álagning kaupmannanna?

Af hverju lækka útlánsvextir við að ganga í Evrópusambandið?

Ég þykist vita að þetta gangi að einhverju leyti út á samninga og samkomulag en ég sé ekki beinu línuna milli þess að ganga í Evrópusambandið og að allt verðlag skáni hér.

Ef þetta snýst að einhverju leyti um álagningu kaupmanna fá þeir annað hvort alltof mikið í vasann núna eða munu fá alltof lítið eftir hugsanlega breytingu.

Hver missir spón úr aski sínum þegar verð lækkar og vaxtamunur minnkar? Milliliðir? Verður ódýrara að flytja frakt? Mér þætti gaman að komast að því.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fyndið að sumir stjórnmálamenn vilja bara tala um að jákvæðu hlutföllin fari yfir á okkur, en ekki þau neikvæðu... Veistu það getur vel verið að matvælaverð lækki eitthvað.

Mun atvinnuleysi verða 10% ? Mun 1% íbúa okkar (3000) búa á götunni? Munu laun lækka um 1/3?

Reyndar veit ég ekki nákvæmlega hver meðallaunin eru í ESB en þau eru töluvert lægri en hérna, því eðlilegt að vöruverð sé það einnig. Ef við mínusum landbúnaðarvörur, áfengi og tökum til greina launamun þá er í raun að borga svipað fyrir matvörur.

Geiri (IP-tala skráð) 8.9.2007 kl. 17:26

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Einmitt, ef sjálfvirknin er svona línuleg að matarverð lækki (án þess að það bitni á neinum) hljótum við að mega reikna með að atvinnuleysi aukist eins línulega.

Berglind Steinsdóttir, 9.9.2007 kl. 10:31

3 identicon

Það gleður mig að sjá einhvern skrifa gagnrýni um inngöngu í Evrópusambandið því ég skil ekki þennan halelúja-kór um allt það frábæra sem gerist ef við göngum í sambandið en hitt gleymist. T.d. hækkaði allt, matur (í verslunum og á veitingastöðum) og fatnaður í Hollandi og Þýskalandi, nokkrum mánuðum eftir inngönguna. Fyrst lækkaði allt ... síðan hækkaði það aftur. Var þar á ferðinni sami sjúkdómur og vörugjaldssjúkdómurinn í matvöruverslunum hér??!! Veit það svei mér ekki ...

Ásgerður (IP-tala skráð) 10.9.2007 kl. 11:17

4 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Við stofnum annan kór, Ásgerður.

Berglind Steinsdóttir, 10.9.2007 kl. 20:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband