Fura, Grelöð, Arngnýr, Brák

Mannanafnanefnd blessaði ýmis nöfn nýlega og um þau var fjallað í vikunni. Í tilefni af því að stórvinkona mín, Sólveig Ólafsdóttir, á afmæli á þessum drottins dýrðar rigningardegi ætla ég að rifja upp hvað hún ætlaði að skíra börnin sín ef hún eignaðist þau. Strákurinn átti að heita Arngnýr af því að það var svo flott á prenti og stelpa annað hvort Grelöð (sú sem ber fræ) eða Brák (fóstra Egils). Fleiri nöfn flugu fyrir og er mér alltaf minnisstæðast þegar hún sagði pabba sínum að hún vildi skíra stúlku í höfuðið á honum. Hún ætti þá að heita Fura.

Og þá rifjast upp líka þegar Erla, önnur stórvikona, sagði í vinnunni sinni að dóttir hennar hefði verið skírð Halldóra Þöll og ein samstarfskonan rak upp ramakvein og sagði: Skírðirðu barnið TRÖLL?

Eldri dóttir Erlu kom heim úr leikskólanum einn daginn með öndina í hálsinum og sagði: Veistu, mamma, það er kominn nýr strákur í leikskólann og hann heitir BJARNI. - Hún var sko ekki lítið hneyksluð.

En nú er mannanafnanefnd búin að leyfa karlmannsnafnið Álfar. Er það fleirtala eða Ál-far?

Til hamingju með þennan merkisdag, Sólveig.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já og svo var það hún Ketilríður Gná.  Ef ég eignast hryssu bráðlega er ég að hugsa um að nota þetta sómanafn sem átti að fara á hana Hrafnhildi okkar Jónu - eða það fannst sumum.

Marín Hrafnsdóttir (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 12:29

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Sem minnir mig einmitt á að minn ágæti bróðir sem einu sinni var uppnefndur (Trausti) tíkarrass gantaðist með að til væru systur í norðrinu sem hétu Ylfa Hörn og Yrsa Görn.

Berglind Steinsdóttir, 12.9.2007 kl. 13:39

3 Smámynd: Þórður Ingi Bjarnason

Sum nöfn sem eru samþykkt eru út í hött svo fá sumir ekki að heita nöfnum sem eru nokkuð eðlileg.  t.d meðð nafnið álfar það var samþykkt en Ekki má skýra börn Valgard.  Nú getum við sagt að  að einn bílstjóri  Valli vinur heitir í dag ólöglegu nafni.

Þórður Ingi Bjarnason, 12.9.2007 kl. 15:36

4 identicon

litli, svarti kötturinn okkar heitir Myrkvi (úthugsað frá sól-/tunglmyrkva) og ég komst nýverið að því að þetta nafn er inná mannanafnaskrá...

Og þegar ég var að glugga í gegnum drengjanafnalistann fyrir 6 árum síðan með vinum mínum sem þá voru að velja nafn á frumburðinn, þá komumst við að því að þau gætu meðal annar skírt drenginn Annar Mars, Júlí eða Ágúst, Skíði, Skúta, Ljótur Drengur. Það kennir ýmissa grasa þarna.

Svo heyrði ég af dreng í Svíþjóð sem ber nafnið Elvis.com þannig að fyrirbærið mannanafnanefnd er svo sem ekki alslæmt. 

ellamaja (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 09:35

5 identicon

Gná er flott og þær systur Ylfa og Yrsa eru til :o)

hrafnhildur (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 10:05

6 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Já, það má oft finna skondin og skemmtileg nöfn hjá Mannanafnanefnd en ég hef áður lýst þeirri skoðun minni að mér finnst það flokkast undir misþyrmingar á börnum að skíra þau ónefnum.

Steingerður Steinarsdóttir, 13.9.2007 kl. 16:23

7 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Já, aðgát skal höfð - og ég er alfarið á móti Elvis.com sem nafni. Ussj, eymingjans barnið.

Berglind Steinsdóttir, 13.9.2007 kl. 16:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband