Hver borgar muninn?

Ég veit ekki hvort mér skjöplaðist illilega í áhorfi á fréttir Stöðvar tvö rétt í þessu. Heimir Már Pétursson sagði frétt af flugi frá Bandaríkjunum í gegnum TravelZoo til Íslands með gistingu í tvær nætur á Hótel Loftleiðum. Pakkinn sagði hann að kostaði 36.000 kr. Ég finn bara þetta í fljótu bragði - en ef eitthvað í líkingu við þetta er satt hlýtur maður að spyrja: Hver borgar raunkostnaðinn?

Icelandair er í samkeppni við erlend flugfélög. En hver veitir Icelandair aðhald hér heima, hver er stjórnarandstaða Icelandairs?

Es. Ehemm, Icelandair býður sum sé Bretum að fljúga til Bandaríkjanna með þessari tveggja daga viðdvöl í Reykjavík. Á 36.000 krónur. Ég flaug til New York fyrir rétt tæpu ári og borgaði minn 45.000-kall með tiltölulega glöðu geði með tveggja mánaða fyrirvara. Það sem maður lætur löðrunga sig.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jamm.  Það er óþolandi hvað Íslendingar eru ómeðvitaðir neytendur og borga það sem upp er sett án þess að mögla.  Nágrannar okkar á hinum Norðurlöndunum er t.d. miklu meðvitaðari um hvað hlutirnir kosta og finnst manni stundum nóg um.  Það er kannski ótti Íslendinga við að vera stiplaðir nirflar, sem kemur í veg fyrir að þeir kvarti undan háu verðlagi?  Kjósa þá sumir löðrunga og rassskelli á allar kinnar í staðinn.

LE

Laufey Einarsdóttir (IP-tala skráð) 17.9.2007 kl. 13:42

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

En ég held að við höfum mjög takmarkað val, það vantar nefnilega samkeppni. Það er súrt. Svo held ég reyndar að það sé svolítið til í því að við óttumst stimpla. Mér hraus sjálfri t.d. hugur við að fara að leigja eftir að ég seldi, eins og ég yrði stimpluð lúser sem gæti ekki átt íbúð. Nú er ég bara sátt við valið (og í stífri leit að íbúð ... hehe).

Berglind Steinsdóttir, 17.9.2007 kl. 20:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband