Ég minnist ára minna í Ingólfsstrætinu með trega

Það er naumast að það hefur orðið vitundarvakning. Ég mætti á borgarafund í Ráðhúsinu og þar hélt hver frummælandinn af öðrum fyrirtakserindi um hvað þarf að bæta í miðborginni, og hvað hægt er að bæta með góðu móti. Ég átti dásemdarár í Ingólfsstrætinu forðum daga en svo spruttu upp skemmtistaðir með leka hljóðveggi og ég hrökklaðist að heiman. Sá tími rifjaðist kirfilega upp fyrir mér á fundinum áðan og árið sem ég gekk milli Pontíusar og Pílatusar að leita úrbóta. Aumingja fólkið sem ég þekkti þá, ég talaði stanslaust í á að giska ár um helvítið sem mér fannst ég búa við. Og þökk sé fólkinu með stáltaugarnar sem hélt tryggð við mig. Úff, ég sé núna úr fjarlægð enn betur hvað þetta var ömurlegt fyrir mig og alla hina líka.

Góðu fréttirnar eru þær að borgarstjóri, lögreglustjóri, íbúar miðborgar og doktorsnemi í skipulagsfræðum eru öll sammála um að nú sé tímabært að snúa þróuninni við. Að öðrum ólöstuðum fannst mér mest gaman að hlusta á Sigmund Davíð Gunnlaugsson, fyrrum fréttamann hjá RÚV og verðandi borgarskipulagsfræðing, þótt hann hafi syndgað feitast upp á náðina. Hann sýndi evrópskar miðborgir með kostum og göllum og það leyndi sér ekki að smekkfullur Tjarnarsalurinn var alfarið á móti einsleitum kumböldum sem þjóna gróða fárra. Það var orðað aðeins öðruvísi.

Við hlógum oft því að erindin voru líka fyndin. Vonandi markar þetta upphafið að bættum miðbæ eins og borgarstjóri lofar. Ég á eftir að una mér enn betur í 101 til framtíðar litið. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já aumingja fólkið sem deildi með þér Ingólfsstrætistilfinningunum  

Hefði náttlega þurft að vera í ráðhúsinu en reikna með að fá ítarlegri skýrslu hjá þér við tækifæri. Ó miðborg ó miðborg.

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 18.9.2007 kl. 10:03

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Munnleg skýrsla verður gefin í næsta brönsi. Og líka um morgunverðarfundinn sem ég ætla að mæta á hjá Björgólfi Guðmundssyni í fyrramálið. Listasafn Reykjavíkur kl. 8:00-9:55.

Berglind Steinsdóttir, 18.9.2007 kl. 21:28

3 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Þeir sem búa í miðborginni og byrja svo að kvarta undan látum eiga bara að skammast sín.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 19.9.2007 kl. 09:41

4 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Nei, Orri, nei, neineinei, þetta er ekki prívatvandamál. Og maður á að leita lausna, ekki líta undan og vona að vandinn hverfi.

Berglind Steinsdóttir, 19.9.2007 kl. 12:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband