Smekkfullur fundur hjá Samsonum í Listasafni Íslands í morgun

Ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum þegar ég mætti á morgunverðarfundinn í Listasafni Íslands í morgun kl. 8:15. Þrátt fyrir að eiginlegur fundur ætti ekki að byrja fyrr en kl. 8:30 var þegar setið á næstum öllum uppröðuðum stólum í stóra salnum uppi. Og morgunverðarhlaðborðið var ekki til þess fallið að fæla frá.

Erindin sem voru flutt gengu út á það, eins og í Ráðhúsinu í fyrrakvöld, að miðborgin er ekki eins góð og hún gæti verið. Frummælendur, ekki síst danski arkitektinn Jan Gehl sem er hokinn af reynslu í skipulagsmálum, sýndu fram á möguleika.

Ég segi bara aftur: Vitundarvakningin er mikil og ég er full bjartsýni fyrir hönd okkar miðbæjarmúsanna. Mér sýnist sem ég þurfi að fara að hitta Sigurgeir Orra, stórvin minn og mótmælanda, á einkafundi til að spjalla um framtíðarhorfur og fortíðarvanda. Miðbærinn getur ekki bara verið hugsaður fyrir skemmtistaðaeigendur, í honum á að vera blönduð byggð.

Samson styrktaraðili


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Ég vildi að ég hefði vitað af þessu. það hefði verið gaman að mæta þótt ég sé Kópavogsbúi.

Steingerður Steinarsdóttir, 19.9.2007 kl. 15:05

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Ertu Kópavogsbúi? Það vissi ég ekki. Ráparðu um strendurnar þar með tíkina Freyju? Mér fannst alltaf að þú værir frekar í Elliðaárdalnum.

Berglind Steinsdóttir, 19.9.2007 kl. 15:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband