Meira af verðlagseftirliti

Ég er mikið að letjast við að fylgjast með verðlagi einstakra vöruflokka. Það eru meiri möguleikar að ég geti borið saman eða bara býsnast. Og nú hljóp á snærið hjá hneykslaranum í mér.

AB-mjólk, 1 lítri, kostar 177 kr. í 10-11 en í Bónus, skv. strimli sem hafði orðið innlyksa í buddunni, kr. 127.

Í bakaríinu var mér gert að borga 635 kr. fyrir tvær kjallarabollur, tvö birkirúnnstykki, einn snúð og eitt sérbakað vínarbrauð. Mér þykir það mikið þótt ég sé borgunarmaður fyrir því. Huggun var að afgreiðslan var á íslensku. Ég þurfti ekki að þýða rúnnstykki - eða sérbakað. Það var reyndar gaman einu sinni þegar Steingrímur ætlaði að þýða sérbakað í Danmörku en það er allt önnur og hálfútlensk saga.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórður Ingi Bjarnason

Það þarf að skoða vel hvað hlutirnir kosta.  Það er mun ódýrara að versla í Bónus og fer ég í sér verslunarferð til Akureyrar einu sinni í mánuði til að versla í Bónus.  þar versla ég alla frysti vöru og það sem mér vantar og þegar ég er búinn að draga ferðakostnað frá þá munar samt mikli hvað það er ódýrara.

Þórður Ingi Bjarnason, 23.9.2007 kl. 12:14

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Og hvernig getum við ræktað verðlagsskyn í hina, Þórður?

Berglind Steinsdóttir, 23.9.2007 kl. 19:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband