Fundur í Iðnó í hádeginu

Herdrengurinn sem var gert að bera vopn og beita því á aldrinum 13-16 ára las úr bók sinni í Iðnó í hádeginu. Eða svo sagði auglýsingin. Ég ætlaði að mæta og hlýða en komst ekki inn úr anddyrinu. Það er út af fyrir sig gott að svo margir hafi áhuga á að heyra sjónarmið hans en samt held ég að áherslan á hádegissúpu hafi verið fullfyrirferðarmikil. Ég missi af kvöldfréttum sjónvarpsstöðvanna en bíð annars forviða eftir að heyra meira af hremmingum hans.

Ég er nú einu sinni heimsforeldri hjá Unicef.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

essuHafði ekki heyrt af þessu. Hef verið löt við að lesa fréttirnar undanfarið. Annars treysti ég alltaf á þig Berglind mín. Sé margt hér sem ég missi af annars staðar. 

Kristín M. Jóhannsdóttir, 24.9.2007 kl. 21:09

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Ég held að þessu hafi ekki verið gerð sérstök skil í fréttum - en ég skal reyna að standa undir væntingum ... tíhí. Reyndar var pilturinn í Kastljósinu og sagði þar frá því að allt niður í 9 ára gömul börn, drengir geri ég ráð fyrir í fordómum mínum, þyrftu að bera vopn (sem þau standa varla undir) og beita þeim. Það var annað hvort það eða vera sjálf drepin. Síerra Leóne. Gaman að rifja upp líka að stjórnarformaður Samskipa gaf hellingspening til Síerra Leóne á afmælinu sínu í vor.

Berglind Steinsdóttir, 24.9.2007 kl. 22:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband