Föstudagur, 28. september 2007
Er rautt litur munkanna?
Í gær fékk ég sms:
In support of our incredibly brave friends in Burma: May all people around the world wear a red shirt on Friday, September 28. Please forward!
Ég áframsendi aldrei neitt, það er regla, en það er ekki ofverkið mitt að vera í rauðri skyrtu í dag. Er ekki annars búið að breyta nafninu í Myanmar?
Athugasemdir
Hah! Alveg óvart er ég í rauðu í dag ... hefur ekkert með það að gera að 75% fatnaðar í skápnum mínum er rauður!
Ég veit ekki betur en búið sé að breyta nafninu í Myanmar en það er nú vissulega auðveldara að setja Burma!
Ásgerður (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 08:27
Ég skil ekki að ég skyldi ekki skrifa Míanmar, eða þá Mýjanmar. Jafnvel Mjanmar. Það er alveg úr karakter mínum að apa eftir bandarískum miðlum. Annað en Ásgerður, tíhí ...
Ég get staðfest að Laufey var ekki rauðklædd sem hlýtur að hafa verið rakinn klaufaskapur því að hún sagðist hafa verið í rauðu í gær og fyrradag.
Um aðrar vinkonur veit ég næsta lítið þennan daginn.
Berglind Steinsdóttir, 28.9.2007 kl. 23:18
ég hefði átt að lesa bloggið þitt í gær. Ég hefði verið í rauðri peysu.
Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, 29.9.2007 kl. 23:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.