Aðdáunarverð stéttarvitund

Ég dróst svolítið aftur úr í blaðalestri um helgina þannig að ég er að lesa laugardagsmoggann núna. Á forsíðu stendur að ekkert þeirra sem sagt var upp hjá Icelandair fyrir mánuði muni missa vinnuna í desember eins og þó leit sannarlega út fyrir. Ég var búin að frétta þetta úr innsta hring en ekki lesa neins staðar í fréttamiðlum. Og nú undrar mig að þessu séu ekki gerð betri skil. Þetta er nefnilega frétt um stéttarvitund. Flugfreyjur nýta sumar tækifærið til að fara í launalaust leyfi og aðrar til að minnka starfshlutfallið til að dreifa áfallinu og sjálfsagt teygir Icelandair sig líka svolítið til að koma til móts við kröfur (sem þó eru eðlilegar).

Alveg vildi ég að leiðsögumenn kynnu þessa tækni. Alveg vildi ég að leiðsögumenn stæðu saman. Alveg vildi ég að leiðsögumenn réttu hlut sinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórður Ingi Bjarnason

Hvenær hafa leiðsögumenn og sama má segja um bílstjóra staðið saman. 

Þórður Ingi Bjarnason, 2.10.2007 kl. 06:52

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Ég held að bílstjórar séu meira að segja sundurleitari stétt, því miður, og er þá langt til seilst.

Berglind Steinsdóttir, 2.10.2007 kl. 07:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband