66°N, nei takk

Ég heyrði í útvarpinu áðan meðan ég var að vakna að í einhverju blaði kæmi fram í dag að vörurnar frá 66°N væru þrisvar sinnum dýrari hér en í Bandaríkjunum. Því trúi ég. Útivistarfatnaðarvörueigandinn var svo almennilegur að auglýsa á laugardaginn margar vörur með verði - og það er hreint og klárt rán. Fólk í kringum mig hefur ætlað að kaupa regnheldar buxur og jakka í stíl en fórnað höndum og hlaupið grátandi út. Einhver setti undir sig hausinn og keypti húfu og vettlinga fyrir vikulaunin.

En ég er enn staðráðnari í að vera í flísvestinu mínu frá Regöttu og lopapeysunni sem mamma prjónaði. Væsir ekki um mig en ég sel engar vörur fyrir 66° á meðan. Ég á gömlu slitnu úlpuna mína merkta fyrirtækinu og það fellur enginn í stafi yfir henni. Svo á ég reyndar eina flíspeysu frá þeim tíima sem 66° var ekki byrjað að sníða þær til og hún er bara hvorki þægileg né falleg, kannski meira að segja komin í tunnuna.

Nei, úr því að Sigurjón Sighvatsson vill frekar dekra við Bandaríkjamenn en mig verður víst ekkert af því að ég auglýsi vöruna hans fyrir öllum þeim fjölda Bandaríkjamanna sem ég dinglast í kringum á ársgrundvelli.

Ég er ekkert fúl ... en í hvaða blaði var fréttin?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórður Ingi Bjarnason

Ég heyrði þetta líka í morgun.  Það er ótrúlegt að fyrirtæki sem framleiðir þessar vörur hér á landi getur ekki selt þær á sæmilegu verði hér. Þetta er RÁN

Þórður Ingi Bjarnason, 2.10.2007 kl. 08:22

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Ég er núna búin að finna fréttina á bls. 2 í Blaðinu. Halldór Gunnar Eyjólfsson forstjóri segir að umboðsmaður í Bandaríkjunum hafi selt lagerinn sinn með tapi ...

Berglind Steinsdóttir, 2.10.2007 kl. 08:34

3 identicon

Tapi - slapi! puhh!

Ásgerður (IP-tala skráð) 2.10.2007 kl. 13:52

4 Smámynd: Þórður Ingi Bjarnason

Það selur enginn lagerinn sinn með tapi.  Það er alltaf einhver gróði allavega kostnaðarverð.

Þórður Ingi Bjarnason, 2.10.2007 kl. 16:26

5 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Fyrir mörgum árum vantaði mig nýjar skíðabuxur. Ég hef sérstakar þarfir þar. Skíðabuxurnar þurfa að vera með axlaböndum og helst renndar upp eftir öllum hliðum þannig að hægt sé að fara úr þeim þegar maður er í skíðunum (það er bara af því að ég þurfti svoleiðis þegar ég var að keppa). Allar slíkar buxur eru alltof langar á mig því ég er pínulítið stutt í annan endann eins og þú veist. Ég spurði þá hjá 66N hvort þeir seldu ekki buxur í mismunandi lengdum en nei, ekkert svoleiðis. Svo ég labbaði yfir í Max sem þá var og hét og fann þessar fullkomnu buxu með axlaböndum (hærri á bakinu) og renndum hliðum. En of langar. Kona kom til mín og spurði hvort ég vildi máta buxurnar. Ég sagði mæðulega að þær væru of langar á mig. Konan sagði að það væri nú ekki mikið mál. Ég skyldi bara finna hvað passaði í mittið og svo myndi hún mæla á mér fæturnar og þeir gætu búið til buxur sem pössuðu mér. Þeir byggju þetta hvort eð er til sjálfir. Nokkrum dögum seinna var ég komin með fullkomnar buxur frá Max og núna, um tólf árum seinna, eru þær ennþá fullkomnar. Sakna Max.

Annars á ég þesa fínu flíspeysu frá 66N sem ég nota mikið. En ég nota líka mikið peysuna mína frá Cintamani og auðvitað lopapeysurnar fínu. 

Kristín M. Jóhannsdóttir, 2.10.2007 kl. 18:04

6 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Æ, Stína, mikið gleður mig þessi saga, sko af Max. Og maður spyr sig í krafti hvers 66° selji sig svona dýrt.

Berglind Steinsdóttir, 2.10.2007 kl. 18:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband