Miðvikudagur, 3. október 2007
Ég trúi á álfa ... eða huldufólk ... kannski - eða ekki
Ég fagna öllum tækifærum sem bjóðast til að segja farþegum mínum frá hjátrú Íslendinga. Auðvitað trúum við ekki á huldufólk, álfa, tröll og drauga ... en engu að síður eru sögur af því að verkfræðingar og verktakar fresti framkvæmdum við húsbyggingar, færi staðina til, ávarpi álfa og fái presta til að tala máli sínu. Vegna álagabletta sem hafa verið slegnir kemur einhver fram hefndum þegar tæki bila, brotna og fara ekki í gang. Vegir hlykkjast sumir óreglulega af engri sjáanlegri ástæðu.
Selshamurinn, 18 barna faðir í Álfheimum, trunt trunt og tröllin í fjöllunum, fálkinn sem étur systur sína rjúpuna, Rauðhöfði, Garún Garún, óhreinu börnin Adams og Evu, Gissur á Botnum - ég var látin lesa þjóðsögurnar sem barn og tel mig vita að þær hafi sprottið upp úr einhvers konar veruleika fólks á sögu- og/eða ritunartíma. Fólk ráfaði um í þoku og sudda og rökkri, hélt að ófreskja af einhverju tagi væri á hælunum, rétt slapp heim og naut þess að segja sögur af eigin björgun úr lífsháska. Það var ekkert sjónvarp, hey, fólk vantaði skemmtun á kvöldvökunum. Og eru þessar bókmenntir ekki í lagi sem slíkar?
Nú hefur Stefán Helgi Valsson leiðsögumaður vísað á heimasíðu Félags leiðsögumanna á tengla sem staðfesta að fleiri en ég telja þessar sögur frásagnarinnar virði, a.m.k. sem bókmenntir og forna þjóðarvitund.
Ráðnir auglýsendur ferðaþjónustunnar gera grein fyrir sögunum með vísan til Erlu Stefánsdóttur sjáanda. Þegar ég vann að menningar- og upplýsingamálum í Hafnarfirði varð ég aldrei vör við annað en að menn tækju a.m.k. hæfilegt mark á þjóðtrúnni enda er Hafnarfjörður aðalheimkynni huldufólks á Íslandi. Og Sigurbjörg Karlsdóttir leiðsögumaður heldur uppi merkinu og fer daglega á sumrin í álfagönguferðir sem eru vel sóttar af útlendingum.
Wikipedia, sem er nú stundum svona og svona, fjallar um Álfaskóla Magnúsar Skarphéðinssonar (sem er reyndar ranglega sagður bróðir formanns Samfylkingarinnar - hvað tíminn líður).
Jamm, ég segi gjarnan frá þjóðtrúnni, superstition, Aberglaube, og uppsker stundum skakkt auga bílstjóranna. En ég segi líka frá jarðskjálftum, skattaumhverfi, atvinnulífi, víkingum, lóunni, meðalhita, flúðasiglingum, tungumálinu, handritunum og einhverju til viðbótar.
Á ég nokkuð að leggja þjóðsögurnar á hilluna?
Athugasemdir
Að sjálfsögðu eru álfar og huldufólk til. Við Hafnfirðingar trúum því að minnsta kosti.
Þórður Ingi Bjarnason, 3.10.2007 kl. 22:34
Nei, aldrei að leggja þjóðsögunum. Þær eru snilld.
Steingerður Steinarsdóttir, 4.10.2007 kl. 16:13
Eru aaaálfar kannski meeeenn? Söng það ekki einhver? Já neinei, við höfnum aldrei þjóðsögunum.
Berglind Steinsdóttir, 4.10.2007 kl. 21:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.