Mánudagur, 8. október 2007
Launastríð leiðsögumannsins heldur áfram
Hver er það aftur sem talar svo hátt og snjallt um samspil framboðs og eftirspurnar? Er það ekki einhver hagfræðingur? Eða stjórnmálamaður?
Um daginn var ég beðin um að taka að mér leiðsögn í Bláa lónið og á sleða á Mýrdalsjökul með viðkomu á Gullfossi, Seljalandsfoss og Skógafossi. Ég hafði blendnar tilfinningar gagnvart fyrirtækinu sem er byggt á gömlum og veikum grunni en komið með nýtt nafn og fagurt fyrirheit. Ég viðraði þessar efasemdir en skrifstofumaðurinn sór að allt væri breytt. Og ég sló til.
Ferðin var hin indælasta, gott og skemmtilegt fólk, glæfraakstur í svörtum sandbingjunum, mikið flissað og margt skrafað. Ég sé ekki eftir að hafa farið. Strax eftir ferðina sendi ég ferðaþjónustufyrirtækinu tímana mína og reiknaði með að fá borgað 1. nóvember eða síðar.
En í dag fékk ég launaseðil, útborgun og bréf þar sem mér var tilkynnt um framangreint. Og ég beðin um að hafa samband ef það væri eitthvað. Ég sum sé settist strax við ritstörf:
Sæl x.
Já, það er eitthvað. Ég átti reyndar ekkert sérstaklega von á að þið gerðuð upp fyrr en um næstu mánaðamót þannig að ég þakka þér fyrir að vera mun sneggri en ég átti von á. Og kannski er ástæða til að þakka fyrir að reikna orlof. Í mínum launaflokki er það reyndar 12,07% en ekki 10,17%.
Fjöldi tímanna er réttur, hins vegar er þeim vitlaust raðað á dagvinnu og eftirvinnu. Ég mætti kl. 15 á föstudegi og þá eru í mesta lagi 4 tímar í dagvinnu, allt annað í yfirvinnu, sem sagt 17,5 tímar. Þú hefur líklega ekki áttað þig á að Mýrdalsjökulsferðin var á laugardegi.
Svo er hitt, taxtinn sem þú reiknar er ekki til. Taxti félagsins er á heimasíðu félagsins, sjá: http://www.touristguide.is/index.php?option=content&task=view&id=25&Itemid=48. Dagvinnutaxtinn er sem sagt 1.445,38 og eftirvinnutaxtinn 2.191,26. Heildarsumman er þá 44.128,57 en ekki 33.518. Þetta eru taxtar sem félagið hefur samið um sem lágmarkstaxta við atvinnurekendur.
Að auki sé ég engar greiðslur fyrir símanotkun. Varla finnst þér eðlilegt að ég hringi í bílstjóra og x á skrifstofunni á minn kostnað, er það nokkuð?
Kær kveðja,
Berglind
Sú sem réði mig var ekkert lítið ánægð með að fá leiðsögumann. Hvað í veröldinni veldur því að fólki finnst sjálfsagt að ráða fólk í eins til tveggja daga vinnu með nokkrum símtölum og sem því nemur truflunum frá öðru án þess að ætla að borga því a.m.k. umsamin lágmarkslaun? Og hvað sætta leiðsögumenn sig almennt við? Sætta þeir sig við að fá borgað undir taxta og heldur þess vegna stríð mitt áfram?
Athugasemdir
lofjú
Hrafnhildur (IP-tala skráð) 9.10.2007 kl. 11:51
Áfram BeSt!
Laufadrottningin (IP-tala skráð) 9.10.2007 kl. 16:05
Já, finnst ykkur sem ég sé jafnvel óþreytandi?
Berglind Steinsdóttir, 9.10.2007 kl. 17:06
Gott hjá þér að vekja mál á þessu, því laun eiga að borgast miðað við samninga. Við verðum að standa vörð um að laun innan ferðaþjónustunnar lækki ekki, þau eiga að hækka.
Þórður Ingi Bjarnason, 9.10.2007 kl. 18:01
Það má líka borga yfir samningum þar sem þeir eru lágmarkssamningar. Og í næstu samningalotu þarf bara að gera betur, annars hlýtur fólk að fara meira inn á Dómínós þar sem mér skilst að þessi laun séu greidd fyrir að svara í símann. Hversu lengi ætlar fólk að lifa fyrir vinnuna og vinna fyrir smánarkaup, slíta sér út yfir sumarið og þrauka á veturna?
Berglind Steinsdóttir, 9.10.2007 kl. 18:46
Nú þarf að hækka launin og eins og þú seigir þá má borga yfir samninga. Svo þarf að efla ferðaþjónusta meira til að fleiri hafi vinnu við ferðaþjónustu allt árið. Það er í okkar ferðamálafræðinga að finna ný tækifæri og efla ferðaþjónustu enn meir.
Þórður Ingi Bjarnason, 9.10.2007 kl. 20:11
Og virkja fólkið í kringum ferðaþjónustuna, a.m.k. til að örva hvert annað til dáða.
Berglind Steinsdóttir, 9.10.2007 kl. 20:35
Já og auka samstarf innan ferðaþjónustunnar. Það er svo margt sem hægt er að gera. Nú var ég að taka að mér smá verkefni, þar á ég að koma með hugmyndir að uppbyggingu til að efla þá ferðaþjónustu sem fyrir er á því svæði. Þetta er í nágreni við höfuðborgina og verður gaman að sjá hvað kemur út úr því.
Þórður Ingi Bjarnason, 9.10.2007 kl. 20:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.