Föstudagur, 2. nóvember 2007
Svarið er: birgjarnir
Ég horfði á kvöldfréttirnar í fóðurhúsum. Þar var fjallað um meint samráð. Kannski var samráð, kannski ekki. Verð er samt lægst í Bónusi. Ég varpaði fram spurningunni: Ef Bónus og Krónan hafa samráð með sér - hver tapar?
Mamma sagði: birgjarnir.
Mamma er séð. Ég var búin að gleyma birgjunum. En í kvöld rifjaðist upp fyrir mér þegar ágætur poppkornssali sem seldi bróður mínum, sjoppueigandanum, popp í eina tíð og hann sagði að Bónus kúgaði hann til að selja poppið undir kostnaðarverði. Kynni okkar poppkornssala voru með því móti að ég hafði ekki ástæðu til að vefengja orð hans.
Fyrir vikið varð hann að reyna að vinna tapið upp annars staðar. Hlýtur það ekki að vera? Poppið kostaði meira út úr heildsölunni en í verslunum Bónuss. Ætli það sé ekki eitthvað til í skarpskyggni mömmu? Líða ekki birgjarnir - og ef þeir ætla að halda sér í bransanum þurfa þeir ekki að ... taka vanlíðan sína út á öðrum smásölum?
Ég veit samt ekkert um samráð.
Athugasemdir
Vinur minn vann hjá heildsala sem var með ýmsar vörur. Eitt sinn var ég að halda skemmtun og vantaði tvö kassi af súkkulaði sem þessi heildsala var með. Ég hafði samband við þennan vin minn þar sem hann var sölumaður hjá heildsölunni. Hann sagði mér að ég skildi kaupa þetta í Bónus því það væri mikið ódýrara þar en hann gæti selt mér gegnum heildsöluna. Þannig að miðað við það þá tapa heildsalar.
Þórður Ingi Bjarnason, 2.11.2007 kl. 23:01
Úff, já, þá sér maður það.
Berglind Steinsdóttir, 2.11.2007 kl. 23:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.