Miðvikudagur, 14. nóvember 2007
Að verða fyrir tæknilegu hrósi
Í gamla daga skattyrtist ég oft við elskulegan bróður minn sem rak sjoppu, og með sleifarlagi þótti mér stundum. Hann er óttalega ágætur en mér þótti hann ekki duglegur að taka eftir því sem vel var gert. Stundum reyndi hann að taka sig taki og hrósa svona almennt: Takk fyrir að vera svona dugleg alltaf, eða: Takk fyrir að vera hugmyndarík.
Arg.
Hann átti að taka eftir þegar starfsmaður tók upp hjá sjálfum sér að stilla vörum öðruvísi fram, þrífa sérlega vel í kringum bland-í-poka-borðið, galdra fram meira pláss í frystikistunni eða selja fyrir helmingi meira en á öðrum miðvikudagskvöldum.
Í gærkvöldi velti ég svo hrósi enn meira fyrir mér þegar ég varð viðfang(sefni) í verkefni vinkonu minnar sem er í stjórnunarnámi. Uppleggið var umbun í starfi, hvati (eða lati) - og hrós. Og ég áttaði mig á að almennt hrós er mér einskis virði. Hrós verður að vera fyrir eitthvað afmarkað og helst einstakt. Ég upplifi hrós fyrir það sem mér finnst sjálfsagt að maður geri sem verið sé að tala niður til mín, eins og að segja við vel stálpaðan ungling: Duglegur ertu að reima skóna þína.
Hmm, er ég úti að aka á villigötum? Er ég vanþakklát?
Þegar ég leiðsegi fólki finnst mér mikil umbun þegar fólk hlær einlæglega að bröndurunum mínum og svo líka þegar það kemur til mín við fyrsta tækifæri og spyr af forvitni út í eitthvað sem ég var að segja. Endurgjöfin er áhuginn sem vaknar en ekki endilega ef það kemur og þakkar mér innantómt fyrir með handabandi. Þegar ég hef haft tækifæri til að kenna í Leiðsöguskóla Íslands hef ég látið nemendur vita skýrt að ég gef ekki að pistlunum fluttum einkunn í formi orðanna fínt eða gott, heldur með því að spinna þráðinn áfram og gefa fólki færi á að fylgja málinu eftir.
Ég veit alveg með hvernig fólki ég vil vinna.
Athugasemdir
Oh! Þetta er einmitt það sem ég hef alltaf verið að segja við nemendur mína í lífsleiknitímum; hrós þarf að vera nákvæmt en ekki almennt. Ég skil alveg hvað þú meinar ... og þetta eru frábær dæmi hjá þér ...
... ég vildi að mér hefði dottið þau í hug þegar nemendur vildu nánari útskýringu á því hvað ég meinti með nákvæmu hrósi.
Ásinn (IP-tala skráð) 15.11.2007 kl. 09:20
Uuu, takk. Svo finnst mér líka að ekki megi vanda um við mann fyrir eitthvað sem gerðist fyrir mörgum mánuðum. Ég er voða hrædd um að ég hafi rifjað upp innan fjölskyldunnar of oft þegar ég fékk aðfinnslur fyrir að hafa ekki gengið vel frá í eldhúsi á vinnustað mörgum mánuðum eftir meintan slæman frágang. Ég gat ekki hrakið skammirnar - en er enn þann dag í dag sannfærð um ranglæti og ósanngirni athugasemdanna.
Þetta er sem betur fer fátítt í lífi mínu (fólk þorir ekki).
Berglind Steinsdóttir, 15.11.2007 kl. 22:05
Ég elska líka hrós sem kemur alveg óvænt og beint frá hjartanu eins og: Gast þú þetta virkilega? Love it.
Steingerður Steinarsdóttir, 16.11.2007 kl. 11:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.