Hvað gerir Alþjóðahús?

Hjá Útvarpi Sögu er núna skoðanakönnun um Alþjóðahús, spurt hvort fólki finnist skattgreiðendur eiga að standa undir kostnaði af rekstri þess. Núna klukkan rúmlega níu finnst tæplega 70% að skattgreiðendur eigi ekki að borga fyrir reksturinn.

Ég er kannski hlutdræg, ég veit það ekki. Ég er í námi fyrir verðandi dómtúlka og löggilta skjalaþýðendur. Alþjóðahús hefur beðið mig að taka að mér verkefni sem ég á reyndar erfitt með að sinna vegna annarra anna. Tilfinning mín er samt ómæld sú að Alþjóðahús skipti máli, sé gagnlegt og dálítill gluggi fyrir útlendinga sem eru að reyna að komast inn í íslenskt samfélag.

Á heimasíðunni er að finna allrahanda upplýsingar á 11 erlendum tungumálum. Ég hef verið á póstlista hússins og veit þess vegna um þau ógrynni sem boðið er upp á til að hjálpa fólki að fóta sig og finnast það velkomið.

Hingað koma útlendingar og hér búa útlendingar. Það er okkur öllum fyrir bestu að taka vel á móti fólki og reyna að styðja það fyrstu skrefin. Fyrr en síðar leggst það á árarnar og rær til jafns við aðra.

Ég greiddi sem sagt atkvæði með því að við stæðum undir kostnaði við Alþjóðahúsið. Það er ekki tapað fé.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

... í þessu koma fordómar fólks fram!

Ásinn (IP-tala skráð) 20.11.2007 kl. 08:28

2 identicon

Margir þeirra sem hringja inn á Útvarp Sögu virðast ekki vera á vinnumarkaði heldur hafa árum saman verið á framfæri hins opinbera og eru sífellt að kvarta undan því að fá ekki meira. Þau virðast sjá andstæðinga í flestum nema sjálfum sér; þeir sem koma ár sinni fyrir borð virðast hafa gert það á þeirra kostnað, ríkissjóður sendir þeim ekki nógu mikinn pening, kaupmenn plokka af þeim hverja krónu. En samt virðast þau eiga nóg fyrir símreikningum. Það þarf því engan að undra að útlendingar séu þeim líka þyrnir í augum. En hvers vegna er þeim svona umhugað um að skattfé fari ekki í Alþjóðahúsið, skatturinn kemur a.m.k. ekki frá þeim sem hafa komið sér þannig fyrir í lífinu að þeir borga ekki skatt.

Guðrún (IP-tala skráð) 20.11.2007 kl. 23:14

3 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Ég hlusta stundum á Sögu og missi helst ekki af Sigurði G. Tómassyni og Guðmundi Ólafssyni á föstudagsmorgnum - nema auðvitað hlusta ég á endurflutninginn síðar, ekki vegna þess að ég geti ekki vaknað á morgnana eins og Arnþrúður virðist oft gefa sér heldur af því að ég er í öðrum verkum á morgnana. Og þetta styður einmitt það sem þú segir, innhringjendur og kannski þá margir hlustendur eru ekki í vinnu einhverra hluta vegna. En ég skil ekki af hverju svo hátt hlutfall er á móti Alþjóðahúsi.

Berglind Steinsdóttir, 21.11.2007 kl. 18:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband