Jólabókaflóðið fellur að

Ég fékk fyrsta þefinn af jólabókalestri í kvöld. Mér var reyndar hálft um hálft boðinn Harðskafi Arnaldar til láns í hádeginu en sökum ófyrirgefanlegs athugunarleysis míns láðist mér að þekkjast það góða boð.

Í kvöld lá leið mín á Bókasafn Hafnarfjarðar sem stendur fyrir Kynstrunum öllum. Fimm höfundar lásu úr bókum sínum og heillaði mig sú sem ég átti síst von á. Það var mikil öndvegisstund í miklum þrengslum og nú er ég staðráðin í að lesa Bíbí sem ég var áður staðráðin í að lesa ekki. Það má vel vera að ég heillist ekki af spágáfunni en Vigdís Grímsdóttir hitti í mark með lestrinum.

Svo mun ég spennt lesa Sautjándann eftir Lóu Pind Aldísardóttur sem ég þekki að góðu einu úr fréttum. Í bókinni sinni var hún búin að vopnvæða strandlengjuna sem er heldur nöturleg framtíðarsýn. Þess þá heldur er manni hollt að vera undir innrásina búinn ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir

Þér er sannarlega óhætt að lesa Harðskafa. Mér finnst þetta ein besta bók Arnalds. Þá mæli ég með Rimlum hugans og nýju bókinni hans Hrafns Jökulssonar.

Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir, 23.11.2007 kl. 16:42

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Er ekki bókin hans Hrafns mest fyrir brottflutta Strandamenn ...? Hinar bækurnar les ég klárlega, og margar fleiri. Fékk Himnaríki og helvíti eftir Jón Kalman Stefánsson á bókasafninu í dag. Hlakka til að byrja á henni.

Berglind Steinsdóttir, 23.11.2007 kl. 22:36

3 Smámynd: Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir

Ég er nýbyrjuð á Bíbí og hún lofar svo sannarlega góðu. Jú, "þar sem vegurinn endar" er vissulega um Strandamenn en líka fyrir áhugafólk um galdratrú. Krummi hefur lagt mikla vinnu  í heimildaöflun. Hefði gjarnan viljað heyra meira af Krumma sjálfum en miklu púðri er varið í ættfræði í bókinni á kostnað bráðskemmtilegra lýsinga á sveitareynslu Krumma.

Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir, 25.11.2007 kl. 11:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband