Leiðsögumenn búnir að funda einu sinni með SA

Vefurinn okkar flytur þau tíðindi af samningaviðræðum leiðsögumanna og Samtaka atvinnulífsins að kröfugerð hafi verið lögð fram og að næsti fundur verði um miðja næsta viku. Magnús Oddsson, ekki-ferðamálastjóri, sem útskrifaðist með mér árið 2002 og sem ég hef óbilandi trú á er hóflega bjartsýnn á að samningar náist fyrir áramót. Það held ég að sé dulkóðun fyrir að ekki verði samið fyrr en 17. maí 2009 eða svo. Samningar eru hins vegar lausir 31. desember nk.

Efsti dagvinnutaxti er kr. 1.450 - með orlofi. 17% hækkun flytti taxtann upp í kr. 1.697. Ég vel töluna 17% að vel yfirlögðu ráði - samt er tímakaupið lágt.

1.697 * 170 tímar = 288.490 (með orlofi og óvissu í ráðningu).

Ég veit um leiðsögumenn sem finnst þetta ágætt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Og ég veit um leiðsögumenn sem finnst þetta skítakaup miðað við eðli og ábyrgð starfsins, óvissuna og margt fleira!

Lára Hanna Einarsdóttir, 1.12.2007 kl. 10:49

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Ég held að ég verði líka að endurskoða síðustu línuna hjá mér. Hún ætti að vera svona:

Ég veit um leiðsögumann sem finnst þetta ágætt. Við höfum þráttað um þetta en auðvitað kom á daginn að hann réði sig hjá sama fyrirtækinu heilt sumar, vann sleitulaust frá 1. júní til 15. ágúst - allt stóðst - og honum fannst hann bera mikið úr býtum. Hann lét sér fátt um finnast að vera að frá morgunmat og fram yfir kvöldmat, hitta ekki fjölskylduna nema mjög stopult, hitta aldrei vinina, eyða stökum dögum á milli ferða í að þvo af sér, safna kröftum fyrir næstu ferð, sækja gögn fyrir næstu ferð og kannski borga einn og einn reikning. Í lok sumars var hann úrvinda og þurfti nokkra daga til að vinda ofan af sér.

Ég bíð spennt eftir að heyra af öðrum leiðsögumanni sem finnst taxtinn í lagi.

Berglind Steinsdóttir, 1.12.2007 kl. 17:55

3 identicon

Ja, þetta eru allavega töluvert hærri laun en starfsmenn ferðaskrifstofanna sem eru að ráða ykkur leiðsögumennina fá...

Jóna (IP-tala skráð) 3.12.2007 kl. 01:48

4 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Mér finnst grátlegt að starfsmenn á ferðaskrifstofum séu með lágt kaup, en lenda þeir nokkuð í því að detta út af launaskrá milli kl 12 og 16 af því að þá eru ferðamennirnir með frítíma? Það hendir leiðsögumenn, og samningarnir banna það ekki. Leiðsögumenn í efsta launaflokki með þennan TILBÚNA TAXTA MIÐAÐ VIÐ 17% LAUNAHÆKKUN fá ekki eins dags frí á launum, hvað þá 4-6 vikur af því að orlofið er INNIFALIÐ Í TAXTANUM. Ferðaskrifstofur vilja bóka leiðsögumenn á mánudag, miðvikudag, föstudag og laugardag og síðan er það leiðsögumannanna að finna sér vinnu á þriðjudaginn og fimmtudaginn eða vera launalausir ella.

Mér finnst samt jafn dapurlegt að vita til þess að fólk á skrifstofunni sem stuðlar að verðmætasköpun fái ekki hlutdeild í henni.

Berglind Steinsdóttir, 3.12.2007 kl. 07:44

5 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Mér finnst líka sorglegt að starfsfólk ferðaskrifstofa sé með léleg laun, en það afsakar þó ekki fáránleikann í launatöxtum leiðsögumanna sem, eins og þú bendir réttilega á Berglind, hafa enga atvinnutryggingu. Fyrir utan það sem þú nefnir eru t.d. þriggja tíma ferðirnar sem valda því að leiðsögumaðurinn getur ekki bókað sig í neitt annað þann daginn.

Eitt sem ég hef verið að spá í...  álag vegna fjarveru frá heimili og dagpeningar. Ég hef hvergi séð slíkt nefnt í launatöxtum leiðsögumanna. Ætli til sé sú stétt sem ekki fær dagpeninga þegar unnið er dögum og jafnvel vikum saman í burtu frá heimili sínu...?

Lára Hanna Einarsdóttir, 3.12.2007 kl. 16:18

6 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Ég hef samið um dagpeninga sjálf en þeir eru ekki í kjarasamningunum. Hvernig er aftur með sjómannaafslátt, eru það ekki eins konar dagpeningar? Er ekki hægt að fá leiðsögumannaafslátt í samningana til að mæta fjarverunni?

Berglind Steinsdóttir, 3.12.2007 kl. 16:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband