Fimmtudagur, 3. janúar 2008
Hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu
Fyrir rétt tæpum 5 árum var reiknaður út fyrir þingmann hlutur ferðaþjónustunnar í landsframleiðslu. Þótt svarið sé frá febrúarmánuði 2003 er áætlað hlutfall frá árslokum 2001 - og það er 5%!
Ef stefnumótendur halda að tekjurnar séu ekki nema 5% af heildartekjum - eða kannski rúmlega það núna - er kannski minni furða að þeir haldi að sér höndum.
Í svarinu er líka forvitnileg tafla um hlutfall tekna eftir atvinnugreinum:
Atvinnugrein | Hlutfall tekna | |
Ferðaskrifstofur | 100% | |
Gististaðir | 90% | |
Flugsamgöngur | 80% | |
Samgöngur á landi | 58% | |
Veitingastaðir | 30% | |
Sala sport- og minjagripa | 18% | |
Menning og afþreying | 12% | |
Blönduð verslun | 9% | |
Samgöngur á sjó | 4,5% |
Upplýsingar er víða að finna og nú ætla ég að reyna að upplýsa mig frekar á næstu vikum. Sumarið brestur á fyrr en varir þótt bévítans veturinn reyni af hörku að telja mér trú um annað. Hjá Hagstofunni er t.d. hafsjór fróðleiks.
Hver notar hann?
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.