Um mengun af ferðaþjónustu

Mér var bent á 17 ára gamla ræðu þáverandi umhverfisráðherra sem sagði:

Mig langar bara til þess að minna á að umhverfismálastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur beint þeim tilmælum til allra aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna að draga úr ferðamannaþjónustu og minnka straum ferðamanna til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna vegna þess að ferðamannaþjónusta er einhver mest mengandi atvinnugrein sem fyrirfinnst á jörðinni. Ferðamannaþjónusta, t.d. eins og hún er er rekin á Spáni, hefur valdið meiri umhverfisspjöllum á Spáni heldur en öll álver í Evrópu samanlagt. Ferðamannaiðnaður og ferðamannaþjónusta t.d. í Miðjarðarhafslöndunum hefur valdið svo rosalegum umhverfisspjöllum að það er núna yfirlýst stefna umhverfismálastofnunar Sameinuðu þjóðanna að beina þeim tilmælum eindregið til allra aðildarríkja: Dragið úr ferðamannaþjónustu, reynið að minnka straum ferðamanna til landanna til þess að koma í veg fyrir þau umhverfisspjöll sem ferðamenn valda.

Sannlega sannlega segi ég .. að þetta þyrfti Birna G. Bjarnleifsdóttir að rifja upp. Alveg áreiðanlega las hún þetta og lagði út af þegar ræðan var flutt 18. mars 1991, einkum orðinu ferðamannaiðnaði sem gefur sterklega til kynna að ferðamenn séu fyrirbæri á færibandi, eins og hver önnur kókdolla, vara sem ekki þarf að gefa sérstakan gaum eða sinna sem einstaklingum.

Svo hef ég fyrir satt að umhverfismálastofnun Sameinuðu þjóðanna hafi bara aldrei mælst til þess arna. Það væri alveg einstaklega heimskulegt, fólk var þá, er núna og verður áfram á faraldsfæti. Þetta er meðal lífsgæða fólks - að fara að heiman í lengri eða skemmri tíma, upplifa nýja hluti, stækka heiminn, bæði í eigin landi og öðrum. Og hvort sem fólk er heima eða að heiman þarf það að nærast og hreyfa sig, fótumtroða jörðina og slíta henni einhvers staðar. Það þýðir ekki að snúa sér undan og vona að vandamálið hverfi, miklu nær er að standa uppréttur, fagna áskoruninni og finna viðunandi lausn fyrir verkefnið.

Þrátt fyrir auðheyrðan titring yfir ráðningu nýs ferðamálastjóra bind ég miklar vonir við framtíðina, að mörkuð verði stefna í ferðaþjónustu, vegir bættir, gistipláss um allt land aukið, afþreyingarmöguleikum bætt við - og eftir frétt af nýársdagsraunum fullorðinna erlendra ferðamanna í spreng óska ég þess heitt að þeim líkamlegu þörfum fólks verði hægt að mæta framvegis, líka á helgidögum. Lifi björgunarsveitin sem aumkaði sig yfir fólkið! Auðvitað er ekki háleitt að fjalla um klósettþarfir fólks en skv. þarfapíramída Maslows nýtur fólk ekki æðri gæða ef grunnþörfum er ekki sinnt. Og tilkomumikill Seljalandsfoss í ljósaskiptunum getur átt sig ef þvagblaðran er farin að þrengja að augunum.

Seljalandsfoss


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórður Ingi Bjarnason

Það er ótrúlegt að ráðherra telji ferðamenn spilla meiru en álver.  En ef ekkert er gert í þróun ferðaþjónustu þá skemma ferðamenn mikið.  En með því að vera með góða stjórnun og hafa þolmarkarannsóknir í lagi þá þarf ekki að vera nein skemd af ferðamönum.  Það er skipulag og góð stjórunum sem skiptir máli til að allt gangi vel.  Það verður gaman að sjá nýjan ferðamálafulltrúa halda áfram að byggja upp ferðaþjónustu á íslandi, ég hef trú á Ólöfu í þetta þessu starfi.

Þórður Ingi Bjarnason, 7.1.2008 kl. 10:05

2 identicon

Er það ekki flugið sem mengar svona mikið?

"single transatlantic return flight emits almost half the CO2 emissions produced by all other sources consumed by an average person yearly" 

http://www.unep.fr/pc/tourism/sust-tourism/env-3main.htm

ingvi (IP-tala skráð) 7.1.2008 kl. 19:46

3 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Flugið mengar a.m.k. mikið. Það þýðir samt ekki að við eigum að sitja heima, heldur leita leiða við að minnka mengunina - eða hvað? Eru álflugvélar kannski betri kostur en stálfuglar?

Berglind Steinsdóttir, 8.1.2008 kl. 00:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband