Smekkur verður ekki endilega rökstuddur

Í trausti þess að aðeins Ásinn og e.t.v. Tvisturinn lesi þessa færslu ætla ég að opinbera smekk minn fyrir Spaugstofunni. Hann hefur verið mikill, ég missi ógjarnan af þætti. Það breyttist ekki eftir áhorf síðasta þáttar. Mér þótti að sönnu togna á hnífasettabrandaranum, en Spaugstofan gerir út á ystu nöfina. Þá sjaldan Spaugstofan hefur verið með þemu, eins og geim-eitthvað eða Richard Attenborough (homo islandicus), hefur mig tekið að syfja.

Mér finnst alveg magnað hvað '89 af stöðinni eins og Spaugstofan hét í árdaga hefur elst vel, hvað þessir gaurar sem nú eru að sönnu orðnir miðaldra ná að halda dampi, viðhalda ástríðunni og hafa gaman af þessu.

Ég er aðdáandi og þarf svo sem ekki að rökstyðja það.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hehe! Já, Spaugstofan var góð! ... og ég er ekki einlægur aðdáandi - horfi bara stundum.

Tvisturinn?!?!!

Ásinn (IP-tala skráð) 30.1.2008 kl. 08:26

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Bara ... opna á möguleika í spilastokknum.

Berglind Steinsdóttir, 30.1.2008 kl. 08:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband