Bensínverð

Það er auðvitað að bera í bakkafullan lækinn að spjalla um bensínverð og aðgerðir vöru-, sendi- og leigubílstjóra. Að sumu leyti er ég ánægð með að neytendur láti í sér heyra og rísi upp á afturlappirnar - en ég get ekki að því gert að mér finnst byrjað á öfugum enda. Ég get auðvitað trútt um talað sem vel að eiga ekki bíl, a.m.k. ekki í bili, og hef allt í göngu-, hjóla- eða strætófæri.

Ég vildi sjá fólk ybba sig yfir lélegum almenningssamgöngum. Til þess að geta lagt bílnum þarf fólk að hafa alvöruval. Og Ikea sem sýnir núna gott fordæmi með því að hækka ekki vöruverð er svo úrleiðis fyrir mig að Ikea er ekki raunverulegt val ef ég þarf að mublera upp hjá mér. Nema ég get auðvitað tekið leigubíl ... hmm.

Og mér er alveg sama þótt kaupmenn móðgist þegar ýjað er að því að þeir hafi hækkað vöruverð miklu meira en þörf krefur - af því að þeir geta það. Af hverju sniðgöngum við ekki þær vörur sem sannanlega hafa hækkað í helberu gróðaskyni? Af hverju erum við ekki upplýst um þær vörutegundir? Hvar er gagnrýna fréttamennskan?

Nei, þess í stað keyrir fólk langar vegalengdir til að kaupa ódýrari bensínlítra á Bústaðaveginum og stormar inn í Vodafone til að kaupa iPhone. Þegar upp er staðið erum það við neytendur sem berum heilmikla ábyrgð á því hvernig komið er fram við okkur, við þurfum að standa í ístaðinu og neita að láta misbjóða okkur.

Var nokkuð of mikið að borga 217 krónur fyrir 20 paratabs-töflur?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, hinn almenni neytandi á að hætta að kvarta yfir bensínverði og byrja að taka strætó/hjóla/hlaupa/ganga. Laaaaaangflestir geta það. Þetta er spurning um vilja. Ef fleiri notuðu almenningssamgöngur gæti fólk fyrst óskað eftir betri þjónustu strætó bs. (heiti fyrirtækið það ekki enn þá?). Sem hjólandi vegfarandi get ég t.d. kvartað yfir glerbrotum á gangstéttum og götum borgarinnar og mjög bagalegri stöðu hjólreiðastíga í bílaborginni Reykjavík. Eins og bent er á á heimasíðu mbergs (http://mberg.blog.is/blog/mberg/ - hann sjálfur og nokkrir sem skrifa athugasemdir) vantar líka aðstöðu til að geyma hjól bæði við verslanir og verslunarkjarna sem og við skiptistöðvar strætisvagna.

Já, Íslendingar eru upp til hópa lélegir neytendur í þeim skilningi að þeir láta misbjóða sér endalaust (dæmin eru óteljandi). Þeir gera í rauninni ekkert annað en að þeyta flautur bíla sinni til að mótmæla háu eldsneytisverði í stað þess að hætta bara að kaupa það - hætta að nota bílinn. Atvinnubílstjórar eiga hins vegar engra kosta völ, þeir geta ekki hætt að nota bílana sína ... nema þá að hætta að vinna. Þeir eiga alla mína samúð þessa dagana. Ég vorkenni hins vegar ekkert hinum almenna ,,ég er einn á bílnum mínum og fer ALLRA minna ferða á bíl"-neytanda.

 huh!

Á (IP-tala skráð) 2.4.2008 kl. 15:07

2 identicon

Tek undir með ykkur báðum, heyr heyr. Þó fer ég sjálf allra minna ferða í bíl, skammast mín þó og er því að gera upp reiðhjólið sem hefur verið hreyfingarlaust of lengi.

Auður (IP-tala skráð) 2.4.2008 kl. 19:15

3 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Jamm, við breytum heiminum.

Berglind Steinsdóttir, 2.4.2008 kl. 19:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband