Dagur bókarinnar er runninn upp

Og ég er að lesa Óreiðu á striga. Hún töfrar mig ekki eins og Karitas án titils gerði, en samt ...

Annars spjallaði ég heilmikið um það nýlega hvort Marja væri Marju eða Mörju í aukaföllum. Við ákváðum fyrir okkar parta að beygja hana sem Marju (eins og mér sýnast allir gera reyndar) en samt væri hitt rökréttara. Erum við bara svona ... marísk?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er með 7 bækur á náttstólnum mínum. Er byrjuð á nokkrum þeirra en engri hefur tekist að fanga mig þannig . Þannig bók langar mig að lesa núna, einhverja sem grípur mig heljartökum og ég get ekki slitið mig frá.

Er t.d. með Jane Austin úr Handtöskuseríunni og Mælingu heimsins, hvorug náði að grípa mig.

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 13:02

2 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Mér fannst Óreiða á striga batna mjög þegar líða tók á bókina. Fyrsti fjórðungurinn eða ríflega það náði mér ekki en svo small þetta allt. Gleðilegt sumar Berglind mín og takk fyrir veturinn.

Steingerður Steinarsdóttir, 24.4.2008 kl. 18:54

3 identicon

Ég er enn að geyma mér Óreiðu á striga þar til ég hef algjöra friðastund og tíma til að lesa hana, enda varð ég gjörsamlega heilluð af "Karitas án titils"

Solla (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 13:02

4 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Ég get alls ekki sagt 'Marju'. Það er ekki hægt að vera með a ef u fylgir á eftir. Algjörlega ótækt. Verður að vera 'Mörju'.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 27.4.2008 kl. 18:13

5 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Þú ert bara svona rökrétt, Stína, svo mikill málfræðingur. Ég tek undir með þér - en mun trúlega samt halda áfram að segja Marju vegna þess að nafnið er svona beygt hjá útgáfunni og þá hlýtur (Kristín) Marja að vera á þeirri línu. Og nöfn eru svo persónuleg eign.

Berglind Steinsdóttir, 27.4.2008 kl. 19:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband