Sálarástand þjóðarinnar

Ég skil ekki að þjóðin haldi léttlyndi sínu öllu lengur. Kannski er það nú þegar tapað, ég hef ekki séð hamingjukönnun nýlega. Reyndar hafa margir haldið þessar kannanir óttalegt plat, enda höfum við tilhneigingu til að bera okkur vel, státum okkur af fegurstu konunum, sterkustu körlunum, besta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi, hreinasta vatninu, ferskasta loftinu - og ekki á allt við rök að styðjast.

Þótt ekki væsi um sjálfa mig hafa holskeflur efnahagslífsins komið niður á fólki í mínu nánasta umhverfi. Það sýpur og svelgist á. Spár um niðursveiflur hafa nefnilega ekki forspárgildi, heldur áhrif. Það er hægt að spá fyrir um hegðun náttúrunnar sem hlustar ekki á okkur, en fólk bregst við spádómum.

Verð hækkar milli heimsókna í verslanir. Einhver Bónusbúðin auglýsti enduropnun eftir breytingar og aldeilis stórkostleg tilboð. Þegar glöggir neytendur mættu á staðinn var verð í mörgum tilfellum hærra en það hafði verið áður en búðinni var lokað vegna uppfærslu. Ef það voru tilboð - hvað hefði varan þá kostað án tilboðsins? Og mun kosta þegar kostaboðinu lýkur?

Kunningi minn fór í útivistarbúð og var að hugsa um að kaupa sér bakpoka. Hann kostaði 20.000 krónur. Hann ákvað að fara heim og hugsa málið fram yfir helgi. Svo ákvað hann að slá til, fór aftur og pokinn var kominn upp í 25.000. Ég lýg þessu ekki og ég held að hann geri það ekki heldur.

Ódýru fargjöldin til Kaupmannahafnar eru komin í tæpar 30.000 kr. þótt maður skoði dagsetningar allt að marga mánuði fram í tímann. Það gerir heimsmarkaðsverð á eldsneyti - og kannski hækkandi álverð á heimsvísu.

Ef laun hins almenna launþega myndu hækka í einhverju samræmi við þetta færi sú hækkun út í verðlagið. Svo er sagt. Við erum því í úlfakreppu og ef mér skjöplast ekki eru nokkrir sem tróna ofar öðrum og maka krókinn.

Ég skil ekki hvernig Evrópusambandsaðild á að leysa hvers vesæls manns vanda. Ef verð á að lækka um 30% við það hvaðan eru þá þau 30% tekin? Og ef það lækkar við það eitt af hverju er þá ekki hægt að lækka það strax? Ég tek ekki mark á svari um styrki því að peningar í sjóðum koma einhvers staðar að líka. Hvaðan? 

Þetta eru erfiðir dagar. Getur verið að meint ríkidæmi þjóðarinnar eigi sök á ástandinu, þá þannig að fólk sjáist ekki fyrir og eyði og eyði um efni fram og kollsteypist því þegar harðnar á dalnum? Er daglegur eyðslustuðull orðinn svo hár að fólk getur ekki lagað sig að kreppunni? 

Mér hefur ekki stokkið bros á vör alla vikuna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband