Hvatahópur hættir við!

Ég frétti af hvatahópi sem var væntanlegur til landsins í dag - en hætti við vegna jarðskjálftanna! Sá hópur (eða hópstjóri eða eigandi því að einhver einn eða einhverjir fáir taka af skarið) er greinilega ekki einu sinni pínulítið áhættufíkinn, varla forvitinn - eða hvað? Hvernig er jarðskjálftunum okkar lýst í heimspressunni?

Sjálf sat ég við skrifborð á 1. hæð í Reykjavík og fann fyrir honum. Ég veit um fólk sem var á ferð nálægt upptökunum og fann ekki neitt.

Ekkert manntjón varð og það er fyrir mestu. Ég held að ég geti ekki sett mig í spor þeirra sem ekki þora til Íslands. Og ég grínast sem leiðsögumaður oft við fólk á leið frá Keflavík og segi: Því miður get ég ekki orðið ykkur úti um jarðhræringar eða eldgos ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég var að vinna á ferðaskrifstofu í Kaupmannahöfn árið 2000 þegar síðustu Suðurlandsskjálftar urðu.

Ég fékk þá símtal frá konu sem átti bókaða ferð til Íslands fyrir sig og fjölskyldu sína. Hún vildi vita hvort fjölskyldunni væri óhætt að koma til Íslands eða hvort allt væri í rúst. Hún tjáði mér að hún væri nú bara hringja til þess að friða manninn sinn því henni fannst þetta bara spennandi með jarðskjálftana en væri miklu hræddari við flugið sjálft og vilidi í raun mun fremur sigla til Íslands en fljúga.

Elísabet (IP-tala skráð) 1.6.2008 kl. 11:07

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Þetta er fréttaflutningurinn, á BBC og Berlingske sá ég talsvert gert úr nálægðinni við höfuðborgina. Drama.

Berglind Steinsdóttir, 1.6.2008 kl. 19:43

3 identicon

Við búum á Selfossi og fengum tvær upphringingar frá Danmörku, tölvupóst að auki, til að athuga hvort allt væri í lagi með fólkið hér. Þau höfðu fyrst heyrt fréttir í útvarpinu og svo voru komnar sjónvarpsfréttir líka, geri ráð fyrir að allt sem leit mjög illa út hafi verið fréttnæmast, kannski von að fólk þori ekki hingað. 

Guðrún (IP-tala skráð) 1.6.2008 kl. 22:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband