Stígvél

Camilla Boots

Red

Salmon / Goat

Rubber outsole

Leather lining

6,5cm heel

Er eitthvert tískutröll sem getur sagt mér hversu mörgum kúlum má eyða í svona stígvél? Eitt á hvorn fót. Hvað getur maður notað þau mikið? Eru þau ekki orðin of áberandi eftir fimm skipti?

Minni svo leiðsögumenn á fund um kjarasamninginn í kvöld.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég kannast við gripinn, í þessari búð er margt ansi flott - en dýrt. Maður kaupir nú ekkert þar fyrir leiðsögumannalaunin.

Ég hef ekki kosningarétt um kjarasamninginn en mæti samt... kannski.

Lára Hanna Einarsdóttir, 5.6.2008 kl. 11:06

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Hvernig getur ÞÚ ekki haft rétt til að kjósa? Ertu verktaki næstum alltaf?

Berglind Steinsdóttir, 5.6.2008 kl. 19:44

3 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég er alltaf verktaki, set upp mitt verð sjálf og neita að vinna fyrir lúsarlaunin.

Lára Hanna Einarsdóttir, 5.6.2008 kl. 19:48

4 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Ása Björk var með flott innlegg í umræðuna í kvöld.

Og ég er hér með orðin hundleið á að umræðan beinist undantekningalítið að ökuleiðsögn - án þess að ég vilji gagnrýna ökuleiðsögumenn. Ökuleiðsögumaður er sá sem keyrir og kjaftar og hann á að fá eitt og hálft kaup þar sem ábyrgðin er meiri og vinnan líka. Það er jafnvel meiri vinna að vera með einn eða tvo en átta farþega. Ef ökuleiðsögumanni býðst bara kaup leiðsögumanns af því að farþegar eru fáir HLÝTUR HANN AÐ SEGJA EINFALDLEGA NEI TAKK.

Berglind Steinsdóttir, 5.6.2008 kl. 23:38

5 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Einmitt, það er nákvæmlega það sem ég geri - segi nei takk.

Ása Björk er flott kona með flottar skoðanir - enda er hún í Iceland Guide.

Ég þurfti að vinna, kláraði um miðnætti og komst því ekki. Bíð samt spennt eftir fréttum af fundinum.

Lára Hanna Einarsdóttir, 6.6.2008 kl. 01:50

6 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Sumir hvöttu okkur eindregið til að fella samninginn, sögðu að 15.000 króna hækkun á mánaðarlaunum skipti engu máli í heildarpakkanum hvort eð er (nema fólk væri kannski við það að missa íbúðirnar sínar). Þau voru á því að við sendum sterkari skilaboð með því að verða samningslaus. Aðrir voru þeirrar skoðunar að með því að samþykkja hann fengjum við þó þessa hækkun, 15.000 á mánuði, 3,5% eða hvað það nú er, og gætum endurskoðað samninginn ef ekki hægðist á verðbólgunni. Mest varð umræðan um ökuleiðsögn og hvort einhvern tímann hefði einhver samið af sér.

Atkvæðið mitt liggur á sófaborðinu. Ég hef rúma viku til að ákveða mig ...

Berglind Steinsdóttir, 6.6.2008 kl. 16:14

7 Smámynd: Hermann Bjarnason

Missti af fundinum, en hefði viljað heyra innlegg Ásu Bjarkar. Leiðinlegt að heyra að umræðan fer alltaf útí þvarg um ökuleiðsögn. Það er tvennt í stöðunni: af prinsippástæðum ætti maður að fella samninginn, m.a. vegna þess að samningurinn er í raun launalækkun en ekki hækkun. Að öðrum kosti fellir maður samninginn ekki, til að fá vinnufrið og einhverja hækkun þó. En annars gilda gömlu samningarnir í allt sumar, og hagnast atvinnurekendur einir á því. Tvennir kostir slæmir

Hermann Bjarnason, 7.6.2008 kl. 20:29

8 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Já, og fúlt að geta ekki greitt atkvæði með athugasemdum.

Það voru fleiri en Ása sem tjáðu sig, öll samninganefndin sem hefur staðið sig vel þótt við viljum eðlilega meira; Ingi Werschofen (nei, hvernig er föðurnafnið?) sem var því fylgjandi að við felldum samninginn til að undirstrika óánægju okkar í verki; Bryndís Kristjánsdóttir sem sagðist koma frá heimili þar sem leiðsögumaður hefði framfleytt sjö manna fjölskyldu á síðustu öld; Börkur Hrólfsson sem fór lið fyrir lið í gegnum greinarnar.

Ég þekki Ásu frá fornu fari og veit að hún er skelegg, það var bara bónus að hún skyldi koma upp og segja í fáum vel völdum orðum það sem skiptir máli, hluti sem við auðvitað vitum öll. Launin eru ekki samkeppnishæf.

Og launin eru auðvitað sá stóri þáttur sem fólk lítur til. Líka uppsagnarákvæði; hvað á það að þýða að hringja í ráðinn ökuleiðsögumann tveimur tímum fyrir mætingu og segja upp ökuþættinum? Hvað ef hann svarar ekki, er þá tjónið hans? Hann á ekki að mæta fyrr en eftir tvo tíma - og gæti verið í sundi. Eða sofandi sem er mun líklegra af því að ferðir byrja allajafna á morgnana. Og hvernig finnst ökuleiðsögumanni að vera vakinn kl. 6:40 með þeim fréttum að þegar hann mætir til vinnu kl. 8:45 þurfi hann aðeins að tala og fái mun lægra kaup?

Það er auðvitað gargandi hálfvitalegt að leiðsögumenn þurfi að búa við þetta endalausa óöryggi í vinnu.

-Svo mælir leiðsögumaðurinn í hlutastarfinu sem sjálfsagt eyðileggur stundum fyrir hinum.

Berglind Steinsdóttir, 8.6.2008 kl. 21:41

9 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Ingo (ekki Ingi, eins og ég veit líka vel) fylgdi ræðu sinni eftir með skrifum til vefsíðu Félags leiðsögumanna. Vert að halda til haga.

Berglind Steinsdóttir, 9.6.2008 kl. 13:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband