Sunnudagur, 8. júní 2008
Marineraður lax
Fyrir mig var borinn lax sem hafði marinerast í hálfan sólarhring. Í marineringunni var uppistaðan teriyaki-sósa, svo alltént eitthvert hunang og kannski sinnep. Þessi hér væri tilraunarinnar virði.
Ég sem hef hingað til aldrei getað etið lax mér til gleði.
Athugasemdir
Lax finnst mér fyrirtaksfiskur, með því allra besta sem ég fæ hvernig sem hann er hanteraður.
Steingerður Steinarsdóttir, 9.6.2008 kl. 10:12
Þú átt margt eftir og ég öfunda þig að hafa átt það eftir að uppgötva snilld laxins.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 9.6.2008 kl. 18:43
Mágur minn, sextugur, uppgötvaði lauksúpu fyrir tveimur árum og var með böggum hildar í nokkra daga fyrir að uppgötva hana svona seint. Það er hins vegar dægilegt að geta dekrað við bragðlaukana áfram og áfram. Bíð spennt eftir að koma auga á dýrð lifrarinnar.
Berglind Steinsdóttir, 9.6.2008 kl. 20:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.