Fimmtudagur, 4. september 2008
Mogens Glistrup vs. Gert Jacobsen
Konungsmorð Hanne-Vibeke Holst liggur í valnum! Lykilsaga úr danskri pólitík. Dani sem ég hleraði um daginn sagði að lykillinn að Gert sem er stór persóna í bókinni og heldur til í Christiansborg væri víst Mogens Glistrup. Gert hafði hins vegar aðlaðandi framkomu út á við ólíkt Mogens sem fólki virðist bera saman um að hafi verið ... í besta falli litríkur persónuleiki en miklu fremur óaðlaðandi í útliti og framkomu.
Krónprinsessan sem er sjálfstæður undanfari Konungsmorðsins var gefin út á íslensku 2005 en þá var ég búin að lesa hana á dönsku. Ég hef enga innsýn í danska pólitík, rétt svo veit að Venstre er lengst til hægri og að Anders Fogh Rasmussen er forsætisráðherrann, en Danmörk er nágrannaland þannig að maður náði nokkuð að glöggva sig. Dásamleg samtímalesning.
Ég hef engan áhuga á að rekja söguþráðinn í tæplega 500 blaðsíðna bók, andvarpa bara djúpt af ánægju yfir dönsku og hugsa með hrolli til þess hvað bærist undir kyrrlátu og friðsælu yfirborði, hvað einstakar konur láta berja sig til hlýðni, hvað einstakar konur láta skjalla sig til eftirlátssemi, hvað einstakir karlar ganga á lagið og hvað einlægni virðist fjarri í pólitík.
Charlotte Damgaard er þó teiknuð upp sem nokkuð heilsteypt og fær þá bágt fyrir hjá sumum flokkssystkinum sínum. Per Vittrup þekkir ekki sinn vitjunartíma og fær kaldar kveðjur sem segir manni að enginn er annars bróðir í leik.
Skyldi þetta vera eins alls staðar? Langar áhrifamenn almennt ekki til að verða til góðs, horfa á heildarmyndina og taka ákvarðanir út frá hagsmunum fjöldans?
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.