Fimmtudagur, 9. október 2008
Cold War - Cod War - nýenskir tímar?
Kalda stríðið, þorskastríðið, bankastríðið, forsætisráðherrastríðið - og öll getum við fylgst með næstum hverju símtali. En munum við þokast í burtu frá enskunni á næstu árum og taka upp norsku ... eða rússnesku? Einu sinni vorum við næstum orðin amt í Danmörku. Skulle vi måske snarere snakke dansk?
Athugasemdir
Tökum við ekki næst upp rússneskuþað virðist vera sú þjóð sem vill vera vinur okkar þegar á reinir.
Þórður Ingi Bjarnason, 10.10.2008 kl. 08:35
Ansi er ég nú hrædd um að vinátta Rússa verði rándýru verði keypt.
Lára Hanna Einarsdóttir, 10.10.2008 kl. 13:33
Já, það verður eitt ríkisútvarp, ríkisbrauð úr hveiti, ekki gjaldeyrir nema gegn framvísun farseðils, excel hættir að virka og skylduáhorf verður á Spaugstofuna. Ferskvara hverfur úr búðunum. Í fréttunum verða bara Helgi Seljan og Egill Helgason og Sjálfstæðisflokkurinn eignast Moggann. Einu áhyggjur mínar eru að netið verði tekið af mér og ég hætti að geta tekið að mér þýðingar í heimavinnu.
Bömmer, er ég aftur byrjað að delera ...?
Berglind Steinsdóttir, 10.10.2008 kl. 20:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.