Myrká eftir Arnald Indriðason

Svo meðvirk er ég að ég rauk í búð í vikunni til að kaupa nýjustu bók Arnaldar Indriðasonar. Ég er alveg sérlega meðvirk í því að höndla ekki minna en ég á að mér - þar sem ég hef aldrei keypt bók eftir hann áður, hins vegar oft eina bók í nóvembermánuði til að lesa strax.

Kannski hafði áhrif á mig að Katrín Jakobsdóttir mælti með henni í Mannamáli á sunnudaginn var. Kannski var það minningin um að hafa beðið lengi eftir að fá síðustu bókina hans á bókasafninu (Konungsbók) og verða fyrir vonbrigðum. Kannski bara þetta hagstæða verð, 3.590 kr.

Hún er tæpar 300 síður og mér þótti hún sein í gang, eftir á að giska 230 síður þótti mér hún verða vitund spennandi. Ég ber hana saman við bestu bækurnar hans, Grafarþögn og Dauðarósir, og það er eiginlega bara í lokin sem hann nær sér á sitt besta strik, þegar hann gerir skil glæpnum sem olli glæpnum.

Mér finnst Arnaldur nefnilega góður í samfélagsrýninni.

Ég þekki svo marga sem eiga eftir að lesa Myrká að ég voga mér ekki að ljóstra neinu upp, segi bara að mér finnist hún lesandi en varla eigandi. Kannski ég gefi hana bara ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Jájá, gefðu mér hana bara. 'Eg kem heim um jólin!!!

Kristín M. Jóhannsdóttir, 7.11.2008 kl. 23:07

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Hehe, þá get ég fyrst látið hana ganga hringinn á Stór-Reykjavíkursvæðinu og svo taka flugið norður, hehe. Gott fyrirkomulag.

Berglind Steinsdóttir, 7.11.2008 kl. 23:50

3 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Ég ætla að treysta þessum dómi þínum af því við erum sammála um Grafarþögn en hins vegar finnst mér Dauðarósir ekki eins vel heppnuð saga og Mýrin og Röddin. Ef þú hefur gaman af íslenskum reifurum ætla ég að leyfa mér að mæla með Svörtum englum og Blóðbergi Ævars Arnars Jósepssonar.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 7.11.2008 kl. 23:54

4 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Hehe, ég er líka hrifin af Mýrinni en fannst Röddin alveg glötuð. Held að ég hafi ekki lesið neitt eftir Ævar Örn, skal láta hann njóta vafans og athuga með Blóðbergið. Ég er hætt að lesa bækur Yrsu en laðast greinilega eitthvað að krimmunum ... En ertu viss um að þú sért ekki bara búin að gleyma hvað Dauðarósir er góð bók, um það hvernig nokkrir einstaklingar gerðu sér pening úr byggðaröskun? Hmmm.

Berglind Steinsdóttir, 8.11.2008 kl. 00:10

5 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Það var ýmislegt gott í henni en heildin rýrði gildi hennar. Tek hins vegar undir það með þér að sá þáttur sem sneri að sölu kvótans, tilgangi þess og afleiðingum var réttmætur og fullrar athygli verður en tengdist fléttu sögunnar ekki nógu vel að mínu mati.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 8.11.2008 kl. 00:31

6 identicon

Pant fá bókina næst lánaða!!! :-)

Ásgerður (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 21:50

7 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Díll (úr því að Kolbrún gleymdi að taka hana með sér úr heimsókninni áðan).

Berglind Steinsdóttir, 9.11.2008 kl. 20:28

8 identicon

Hvar er ég í röðinni ????

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 20:57

9 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Tjah, líklega á eftir Kolbrúnu þá. Þið gætuð m.a.s. sjálfar hist í hverfinu ...

Berglind Steinsdóttir, 9.11.2008 kl. 22:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband