Þriðjudagur, 20. janúar 2009
Eftirsjá að Vilmundi Gylfasyni
Í Krossgötum á laugardaginn spilaði Hjálmar Sveinsson tæplega 20 mínútna ræðu Vilmundar Gylfasonar þar sem hann studdi vantrauststillögu á þáverandi ríkisstjórn. Hann talaði gegn varðhundum valdsins, varðhundum hins þrönga flokksræðis, talaði um hið morkna vald - mikið væri gott ef fleiri menn hefðu lagt við hlustir þá.
Athugasemdir
Ræðan er mögnuð, ég varðveiti Krossgötuþáttinn í tónspilaranum á blogginu mínu. Svo birti ég ræðuna í nóvember - sjá hér. Gott að lesa um leið og maður hlustar.
Ég lagði við hlustir þá og gott betur. Vilmundur var pólitískt ómótstæðilegur.
Lára Hanna Einarsdóttir, 20.1.2009 kl. 00:16
Jú, ég held að hans tími sé kominn.
Berglind Steinsdóttir, 20.1.2009 kl. 07:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.