Miðvikudagur, 6. maí 2009
Ofgnótt 2007?
Mikið hafði ég heyrt um Konur eftir Steinar Braga en ekkert af því bjó mig undir lesturinn. Kunningi minn las hana og vildi helst ekki tjá sig fyrr en barnsmóðir hans væri búin að lesa hana. Hann lét að því liggja að hún væri svo kvenfjandsamleg. Vinkona mín rétti mér eintakið sitt og sagðist ekkert ætla að segja fyrr en ég væri búin að lesa hana en ýjaði samt að því að hún væri andstyggileg við konur. Ragnheiður felldi dóm um hana strax eftir jólin og fannst hún ruglingsleg. Á baksíðu kiljunnar eru sögunni gefnar allt að fimm stjörnum og þar gefur að líta gnótt lofsyrða.
Framan af er kynning á Evu sem virðist hafa klúðrað sambandi sínu við Hrafn alveg skiljanleg. Hún er verklítil, gefin fyrir sopann og síögrandi sínu nánasta umhverfi. En það virðist vera holur rammi utan um framtíð hennar í glæstu fangelsi Skuggahverfisins þar sem einhvers konar fjárglæframenn vilja gera hana að viðfangi sínu.
Mér er fyrirmunað að skilja söguna sem ádeilu á það bruðl og óhóf sem kennt er við árið 2007 þótt bankabéusar komi við sögu og flottræfilsháttur. Eva virðist vera tilfallandi fórnarlamb fólks sem hefur nægan tíma, nægt fé og gríðarlegt hugmyndaflug.
Aðallega er ég líklega vanþakklát því að ég þurfti að þræla mér í gegnum síðustu 80 blaðsíðurnar. Gerði það tvisvar og var engu sáttari í seinna skiptið.
Kannski er framboðið á 2007 bara svo yfirþyrmandi.
Athugasemdir
Ég er einmitt sammála þér, ég skildi bókina heldur ekki sem einhverja ádeilu á bruðlið 2007. Hún sýnir bara viðbjóðslegan heim hrottaskapar fólks sem virðist ekki bera virðingu fyrir neinu eða neinum. Að því leyti minnti hún mig á Opinberunarbókina eftir Hollendinginn sem ég man ekki hvað heitir en ég man að þú lánaðir mér á sínum tíma - þ.e.a.s. bókina, ekki Hollendinginn!
Ásgerður (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 23:08
Ja, ekki datt mér Opinberunarbókin í hug, ekki neitt. Það eina sem þær eiga sameiginlegt er að einhverjum er haldið föngnum. Ég skildi söguþráðinn í Opinberunarbókinni!
Næstu bækur eru danskur reyfari og svo Tungumál fuglanna eftir Tómas Davíðsson ... sem er dulnefni fyrir mjööög umtalaðan mann. Ræræræ.
Berglind Steinsdóttir, 6.5.2009 kl. 23:29
Tómas Davíðsson = Hannes Hólmsteinn Gissurarson?
Ásgerður (IP-tala skráð) 7.5.2009 kl. 20:14
Vei, ertu til í að leika? Nei, Tómas Davíðsson gaf þessa bók út 1987, þóttist vera ritstjóri og skrifar um pólitísk morð.
Berglind Steinsdóttir, 7.5.2009 kl. 21:25
Það skal tekið fram að ég fékk hjálp núna - Högni vissi svarið: Þráinn Bertelsson
Ásgerður (IP-tala skráð) 7.5.2009 kl. 22:51
Ég hef greinilega ekki tekið nógu vel eftir sl. föstudag vegna þess að Högni sagði að þú hefðir talað um þessa bók þá!
Ásgerður (IP-tala skráð) 7.5.2009 kl. 22:53
Huggun harmi gegn að Högni hlustar þegar ég tala þótt þú gónir með furðusvip út í glugga ...
Fer annars að skoða íbúð á morgun ... með glugga og svölum, hmm.
Berglind Steinsdóttir, 7.5.2009 kl. 23:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.