Sunnudagur, 17. desember 2006
Nei, ég vil alls ekki vinna milljarð
Ekki bara af því að ég hef gjörsamlega nóg fyrir mig að leggja, nei, ekki bara þess vegna, heldur ekki síður vegna þess að mér finnst yfirtaksheimskulegt að einstaklingur, fjölskylda eða þess vegna ætt græði milljarð. Græði milljarð. Getur maður átt það skilið að græða milljarð? Hvort sem í hlut eiga rúpíur eða krónur.
Samt finnst mér svo ásættanlegt að söguhetjan í Viltu vinna milljarð? eignist hann af því að hann græddi hann löglega og af sóðafyrirtæki og svo er a.m.k. látið að því liggja að hann ætli að verja peningunum skynsamlega, gefa með sér og svona.
Þetta minnir mig á árið þegar ég síspurði fólk hvað það myndi gera ef það fyndi 35 milljónir í svörtum ruslapoka undir steini í Laugardalnum. Almennt fannst fólki ég heldur tíkarleg, að setja bara 35 milljónir í pokann, ekki veitti af 135 eða þaðan af meira, en ég man ekki betur en að flestir ætluðu að hætta að vinna og fara að lifa í vellystingum praktuglega. Ég vek athygli á að verðgildi hefur heldur daprast síðan þetta var, fermetraverð fasteigna var áreiðanlega almennt ekki orðið 100 þúsund kall.
Ég vildi a.m.k. verðskulda milljarðinn minn.
Athugasemdir
Þú verðskuldar sko milljarðinn, fyrir að vera svona ósérhlífin.
ingvi (IP-tala skráð) 17.12.2006 kl. 11:48
Jæja, við getum þá líka farið að tala um milljarð aura, og eru ekki lírur enn í notkun einhvers staðar á Ítalíu?
Berglind (IP-tala skráð) 17.12.2006 kl. 14:25
Ónei. Ítalir nota evrur. Davíð Oddsson innkallaði aura og bannaði notkun aura þegar gefnar eru út kröfur. Japanir nota að vísu jen, þannig að ef þetta er milljarður jena þá fengurðu ekki nema rétt tæplega 600 milljónir, og það er varla fyrirhafnarinnar virði, og dugar alls ekki ef þú ætlar að verða 160 ára.
Ingvi (IP-tala skráð) 17.12.2006 kl. 16:10
Ég þigg þennann milljarð, því mér finnst eins og ég eigi hann skilið, hvað mundi kornstöngin kosta ef allir þegnar á Íslandi eignuðust milljarð.
Egill R Hjartarson (IP-tala skráð) 20.12.2006 kl. 06:58
Eigðu hann bara! Og veistu hvað, kornstöngin færi fljótlega í þúsundkalla ef við þénuðum milljarð á mánuði.
Berglind Steinsdóttir, 20.12.2006 kl. 17:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.